Spurning
Hverjir eru vinir og óvinir ljónsins?
Spyrjandi
Hera Ţöll Árnadóttir, f. 1995
Svar
Sjálfsagt má skipta óvinum ljónsins (Panthera leo) í tvo flokka. Ţau dýr sem keppa viđ ţađ um fćđu og ţau sem drepa ljón. Í Afríku er blettahýenan (Crocuta crocuta) í raun eina dýriđ sem keppir viđ ljón um veiđidýr. Blettahýenur geta veriđ í stórum hópum, allt upp í 30 dýr, og geta hrakiđ ljón frá nýfelldri veiđibráđ. Einnig hafa menn orđiđ vitni af hvolpadrápi hýena. Ljón og hýenur keppa ţannig um lífsrými á sléttum Afríku.Ljón (P. leo persica) finnast einnig á afar takmörkuđu svćđi í austurhluta Indlands, nánar tiltekiđ í Gir-skógi, nćrri Nýju-Delí. Á ţessu rúmlega 1.154 km2 friđlandi finnst engin dýrategund sem keppir viđ ljóniđ um fćđu eđa pláss. Áđur fyrr ţegar bćđi ljón og tígrisdýr (Panthera tigris) voru útbreidd á Indlandsskaga hafa ţau veriđ í mikilli samkeppni ţó tígrisdýr hafi valiđ sér búsvćđi í ţéttum skógum en ljón í gisnari skóglendi og á sléttlendi.

Ađeins ein dýrategund drepur ljón reglulega, ţađ er mađurinn (Homo sapiens). Menn og ljón keppa um pláss og hafa árekstrarnir harđnađ sífellt síđastliđin 20 ár eftir ţví sem manninum fjölgar í Afríku. Nú er svo komiđ ađ í álfunni finnast ađeins 20 ţúsund villt ljón en fyrir 30 árum voru ţau yfir 200 ţúsund talsins. Međ sama áframhaldi verđa ljón útdauđ eftir fáeina áratugi. Ţví er mađurinn án efa helsti óvinur ljónsins.
Út frá vistfrćđilegum forsendum er erfitt ađ skilgreina vini ljónsins. Sjálfsagt eru einhver dýr sem ljóniđ hagnast á utan veiđidýra en vinátta er ţeirri náttúru gćdd ađ báđir ađilar hagnast á sambandinu. Ţannig er til dćmis erfitt ađ segja ađ sebrahesturinn (Equus spp.) sé vinur ljónsins, ţar sem sebrahesturinn hefur lítinn hag af ţví ađ vera bráđ ljónsins. Aftur á móti kann ađ vera ađ ljóniđ lifi samlífi međ smávöxnu dýri, sem mćtti ţá túlka sem eins konar vináttu. Höfundi er ţó ekki kunnugt um ţađ.
Frekara lesefni á Vísindavefnum eftir sama höfund:
- Hvernig eru ljón á litinn og hafa öll karlljón makka?
- Eru ljón hćttuleg mönnum?
- Hvernig fjölga ljón sér?
- Hvers vegna drepa ljón blettatígra?
- Gćtu ljón lifađ á grćnmetisfćđi?
- Er hćgt ađ temja ljón?
- Hvađa dýrategundir hefur mađurinn ofveitt eđa ofnýtt ţannig ađ ţćr hafa dáiđ út?
- Hversu margar tegundir af dýrum eru í útrýmingarhćttu í dag og af hverju?
- Er útrýming dýrategunda alltaf manninum ađ kenna?
- en.Wikipedia.org - lion. Sótt 6.5.2011.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.5.2011
Flokkun:
Efnisorđ
ljón bráđ vinir óvinir samlífi blettahýena mađurinn veiđar ávinningur sebrahestur
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hverjir eru vinir og óvinir ljónsins?“. Vísindavefurinn 9.5.2011. http://visindavefur.is/?id=59471. (Skođađ 25.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffrćđingur





