Eru mennirnir rándýr?
Spyrjandi
Aðalbjörn Jóhannsson, f. 1998
Svar
Í vefútgáfu Íslensku alfræðiorðabókarinnar má finna tvær mismunandi skilgreiningar á rándýrum. Annars vegar eru dýr sem nærast einkum á kjöti annarra dýra, það er að segja kjötætur, oft nefnd rándýr. Hins vegar er rándýr íslenskt heiti fjölbreytts ættbálks spendýra sem kallast á fræðimáli Carnivora.![]() |
Menn eru reyndar ekki af ættbálki rándýra, enda þótt þeir leggi sér oft kjöt til munns, heldur eru þeir af ættbálki fremdardýra (sem einnig eru kölluð prímatar). Algeng einkenni fremdardýra eru meðal annars griphæfir fingur og stór heilabörkur. Rétt er þó að nefna að báðir ættbálkarnir tilheyra flokki spendýra og því ýmislegt líkt með þeim. En gætu menn talist rándýr í óformlegri skilningi, það er kjötætur?
Ljóst er að menn hvort tveggja drepa sér til matar og neyta kjöts dýra í þónokkuð miklu magni. Því gegna menn oft vistfræðilegu hlutverki rándýrs. Vistfræði mannsins flækist þó enn af þeirri óvenjulegu stöðu að þeir rækta sér oft eigin mat; jafnt dýr sem plöntur og sveppi.
En þótt menn borði margir kjöt er kjötát þeim ekki bráðnauðsynlegt til að draga fram lífið. Til dæmis neytir stór hluti íbúa Indlands, um 20-40%, alls ekki kjöts. Það þarf að vísu ekki að leita svo langt; margir Vesturlandabúar kjósa af ýmsum ástæðum að borða ekki kjöt. Mennirnir eru því að minnsta kosti ekki nauðbundin rándýr líkt og til dæmis kattardýr; þeir geta komist af án dýrakjöts.
![]() |
Sé litið fram hjá samhengi nútímans færi þó trúlega næst lagi að kalla menn alætur fremur en rándýr. Það er ekki þar með sagt að menn geti haft hvað sem er að fæðu en mataræði manna er ívið sveigjanlegra en til dæmis hjá ljónum eða kúm, sem eru mjög háð tiltekinni fæðu; ljón kjöti dýra og kýr grasi eða öðrum plöntum. Að vísu finnast undantekningar, líkt og Jón Már Halldórsson fjallar um í svari sínu við spurningunni: Gætu ljón lifað á grænmetisfæði?
Menn þurfa að gæta fjölbreytni í fæðuneyslu svo öll lífsnauðsynleg snefilefni séu tryggð. Við erum, svo dæmi sé nefnt, meðal fárra spendýra sem ekki framleiða C-vítamín sjálf og erum við þess vegna háð upptöku þess úr fæðunni. Skortur á því leiðir til ástands sem oftast kallast skyrbjúgur og er lífshættulegt sé ekkert að gert. Að fjölmörgum öðrum efnum þarf að huga þegar mataræði er sett saman og því er rétt að gæta varúðar við að skera alveg niður neyslu einhverrar fæðu.
Nánar á síðu Lýðheilsustöðvar um neyslu fjölbreyttrar fæðu.
Heimildir: Myndir:
- Wikipedia. Sótt 15. júní 2012.
- Lýðheilsustöð. Sótt 15. júní 2012.
Þetta svar er að hluta eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur19.6.2012
Efnisorð
rándýr menn Carnivora fæða kjöt fremdardýr prímatar grænmeti vítamín steinefni hörgulsjúkdómar fæðuhringur
Tilvísun
Birgir Guðlaugsson, Ásta María Ásgeirsdóttir og Einar Axel Helgason. „Eru mennirnir rándýr?“. Vísindavefurinn 19.6.2012. http://visindavefur.is/?id=62589. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundar
Birgir Guðlaugssonnemandi í Háskóla unga fólksinsÁsta María Ásgeirsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsEinar Axel HelgasonB.S. í stærðfræði
Prenta
Senda
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Af hverju éta rándýr kjöt en ekki plöntur?
- Af hverju eru til rándýr?
- Er hollt að borða bara hráfæði?
- Hvað eru hörgulsjúkdómar?
- Gætu ljón lifað á grænmetisfæði?
- Hvaða kosti hefur kjötát fram yfir grænmetisát (ef mjólkurvarnings er neytt líka)?
- Fá grænmetisætur öll þau næringarefni sem líkaminn þarfnast?
- Getum við lifað á hundasúrum, grasi og öðru slíku eins og hestarnir og kýrnar?
- Blanda einhverjar dýrategundir mismunandi fæðutegundum saman í einni og sömu máltíðinni, eins og maðurinn gerir?








