Algengt er að flokka blómplöntur eftir því hvort þær eru einærar, tvíærar eða fjölærar.
Ýmsar nytjaplöntur eins og hveiti eru einærar.
Einærar plöntur eru plöntur sem lífsferillinn spannar aðeins eitt ár. Þær koma upp af fræi, vaxa og bera fræ og deyja á einu ári. Dæmi um einærar plöntur eru margar algengar...
Fjölmargar dýrategundir eru í svefnástandi stóran hluta ársins sökum óhagstæðra aðstæðna í umhverfinu, svo sem fæðuskorts, kulda eða þurrkar. Bjarndýr eru að öllum líkindum kunnasta dæmið um dýr sem leggjast í langan dvala. Algengt er að bjarndýr safni fituforða seint á sumrin og dæmi eru um að brúnbirnir geti...
Þegar talað er um eðlilega ævilengd katta (Felis catus eða Felis silvestris catus) er mikilvægt að gera greinarmun á villtum köttum og heimilisköttum.
Eðlilegur líftími villikatta er aðeins um tvö til þrjú ár. Heimiliskettir ná hins vegar mun hærri aldri. Eðlilegt þykir að þeir verði 14 ára gamlir en mörg dæmi...
Orðið öræfi er notað um óbyggðir, auðnir og hafnleysi og kemur það þegar fyrir í fornu máli. Í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:1230) er vísað í orðið örhóf í fornu máli í merkingunni ‛oflæti, ofsi; fjöldi, ótal’ og örhæfi ‛óbyggðir, eyðilönd, hafnleysa’.
Í myndinni öræfi h...
Seðlabanki Íslands hefur einkarétt á því að gefa út gjaldmiðil Íslands. Í lok nóvembermánaðar 2003 var samanlagt verðgildi peninga í umferð tæplega 10 milljarðar króna. Þar af var um 8½ milljarður í seðlum og 1½ milljarður í mynt. Fjöldi seðla í umferð var um 6,9 milljónir, þar af voru 2,3 milljónir af 10, 50 og ...
Svarið við þessari spurningu er það að sumir ísbirnir leggjast í dvala. Hér er reyndar ekki um svokallað vetrarhíði (hibernation) að ræða líkt og þekkist meðal margra annarra spendýrategunda þar sem hægist verulega á hjartsláttartíðni og líkamshiti fellur niður í allt að 0°C. Hitastig ísbjarna, eins og annarra bja...
Ýmsar dýrategundir leggjast í dvala til þess að lifa af tímabil sem reynast þeim erfið, til dæmis vegna kulda. Þá hægist á öllum efnaskiptum, líkamshiti þeirra fellur og þau þurfa ekki að nærast.
Kanínur tilheyra héraætt (Leopridea) rétt eins og hérar. Engin þeirra um 60 tegunda sem tilheyra þeirri ætt leggst...
Misjafnt er hve lengi mýflugur lifa, en lífsferill þeirra getur tekið allt frá nokkrum vikum upp í marga mánuði og jafnvel heilt ár. Þetta fer meðal annars eftir árstíma en þær lifa lengur á veturna. Lífsferill mýflugu skiptist í fjögur skeið, fyrst er hún egg, síðan lirfa, þá púpa og að lokum fullvaxin mýfluga.
...
Geitur eru náskyldar kindum og eru meðal nytsömustu húsdýra. Þær verða venjulega um 15 ára gamlar. Helstu afurðir geita eru mjólk, ull, ostur, kjöt og leður. Talið er að maðurinn hafi haldið geitur sem húsdýr í um 10.000 ár.
Á Íslandi hafa geitur verið haldnar frá landnámsöld.
Heimildir:Vefútgáfa Br...
Tjaldurinn (Haematopus longirostris) er einkvænisfugl sem heldur ekki aðeins tryggð við makann heldur einnig við óðal sitt. Það þarf því ekki að koma á óvart að fuglar komi á sama staðinn á hverju ári í nokkur ár. Vitað er um tjaldapar sem kom aftur og aftur á sama staðinn til að verpa í samfellt tvo áratugi!
V...
Dæmigerður líftími skýja er á bilinu 10 mínútur til klukkustundar.
Ský eru sýnilegur hluti uppstreymis, sá hluti þar sem dropar eða ískristallar hafa myndast þegar loft kólnar við að lyftast. Uppstreymið er síbreytilegt en á sér oftast stað í smáum og skammlífum einingum sem ekki lifa nema í nokkrar mínútur hv...
Hvernig?
Frumur eru í stöðugri endurnýjun meðan þær lifa. Þetta þýðir það að stórsameindir frumunnar, til dæmis prótín (prótein), eru í sífellu að brotna niður og önnur samskonar prótín að myndast eftir þörfum. Líftími prótína í frumum er mjög mislangur, allt frá einni eða örfáum mínútum fyrir ensím sem hvata h...
Upprunalega spurningin var:
Hvað lifa veggjalýs lengi í sumarbústað þar sem enginn gistir í amk. eitt ár?
Veggjalýs (Cimex lectularius) eru meðal hvimleiðustu skordýra sem fólk getur fengið inn á heimili sín. Veggjalýs hafa fylgt mannfólkinu í árþúsundir og eru enn skæð meindýr á heimilum nútímamanna. Á Ísl...
Í svari Árdísar Elíasdóttur og Gunnlaugs Björnssonar við spurningunni Af hverju er sólin til? kemur fram eftirfarandi um myndun sólarinnar:Sólin er ein af milljörðum stjarna í Vetrarbrautinni okkar. Í Vetrarbrautinni er að finna risavaxin gas- og rykský. Efnið í hverju slíku skýi gæti dugað til mynda hundruð, jafn...
Einn útbreiddasti misskilningurinn um plasma-sjónvörp varðar líftíma þeirra; að þau endist stutt, skemur en myndlampasjónvörp og LCD-sjónvörp. Sumir halda jafnvel að fylla þurfi á gasið í skjánum eftir ákveðinn tíma og að ekki megi halla þeim. Þetta er einfaldlega alrangt.
Með líftíma er átt við þann tíma sem ...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!