Spurning
Leggjast ísbirnir í dvala?
Spyrjandi
Rúna Snorradóttir
Svar
Svarið við þessari spurningu er það að sumir ísbirnir leggjast í dvala. Hér er reyndar ekki um svokallað vetrarhíði (hibernation) að ræða líkt og þekkist meðal margra annarra spendýrategunda þar sem hægist verulega á hjartsláttartíðni og líkamshiti fellur niður í allt að 0°C. Hitastig ísbjarna, eins og annarra bjarndýra sem leggjast í dvala, fellur aðeins um örfáar gráður. Hjá svartbjörnum og skógarbjörnum (brúnbjörnum) fellur hiti niður í 31-35°C en hiti ísbjarna í dvala er 35-37°C og eiga þeir því ekki erfitt með að vakna upp af dvalanum þó þeir sofi fast og vært.Það eru aðeins birnur sem ganga með húna sem leggjast í vetrardvala en önnur bjarndýr eru virk yfir vetrartímann. Birnurnar leggjast venjulega í dvala seinni partinn í september eða í október, en mánuðina þar á undan éta þær að kappi til þess að safna þeirri orku sem þarf í fósturþroskann, gotið og mjólkurframleiðslu fyrir afkvæmin.

Venjulega gera birnurnar bæli í stórum sköflum við hæðir eða fjöll nærri ströndinni. Birnurnar gjóta svo í nóvember eða desember og ala þá önn fyrir húnunum í bælinu þangað til vorið gengur í garð (mars/apríl). Nokkur svæði eru kunn fyrir að vera dvalarsvæði ísbjarna, svo sem Wrangler-eyja undan ströndum Síberíu.
Heimild og mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.4.2005
Flokkun:
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Leggjast ísbirnir í dvala?“. Vísindavefurinn 8.4.2005. http://visindavefur.is/?id=4878. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur





