Spurning

Hver er munurinn á einćrum, tvíćrum og fjölćrum plöntum?

Spyrjandi

Ingimar Ingimarsson

Svar

Algengt er ađ flokka blómplöntur eftir ţví hvort ţćr eru einćrar, tvíćrar eđa fjölćrar.



Ýmsar nytjaplöntur eins og hveiti eru einćrar.

Einćrar plöntur eru plöntur sem lífsferillinn spannar ađeins eitt ár. Ţćr koma upp af frći, vaxa og bera frć og deyja á einu ári. Dćmi um einćrar plöntur eru margar algengar garđplöntur svo sem stjúpur og morgunfrúr. Einnig er haugarfinn, sem er ekki eins vinsćll í görđum, einćr planta auk nytjajurta eins og hveiti, bygg og hafrar.

Tvíćrar plöntur eru, eins og nafniđ gefur til kynna, plöntur sem ţurfa tvö ár til ađ ljúka lífsferli sínum. Á fyrra árinu vex plantan upp og stöngull og blöđ myndast. Á seinni árinu myndar plantan blómiđ og frć. Dćmi um tvíćrar plöntur eru gulrćtur, rófur og kúmen.

Fjölćrar plöntur eru ţćr sem blómgast ár eftir ár. Venjan er ađ skipta ţessum hópi í tvennt: jurtkennda fjölćringa og trjákennda fjölćringa.



Ţetta eikartré er dćmi um trjákenndan fjölćring

Jurtkenndir fjölćringar mynda stöngul, blöđ og blóm ađ vori en deyja ţegar vetur gengur í garđ. Rótin lifir hins vegar af veturinn og af henni vex plantan ađ nýju ađ vori. Til trjákenndra fjölćringa teljast runnar og tré sem hafa trékenndan. Trékenndur stöngullinn lifir veturinn af og ber blóm og frć á hverju ári.

Myndir: Wikimedia Commons

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur19.12.2006

Tilvísun

JMH. „Hver er munurinn á einćrum, tvíćrum og fjölćrum plöntum?“. Vísindavefurinn 19.12.2006. http://visindavefur.is/?id=6441. (Skođađ 19.5.2013).

Höfundur

JMHlíffrćđingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Nćsti )

Stćrđfrćđingur og brautryđjandi í stćrđfrćđiiđkun á Íslandi. Skrifađi bćđi vísindaritgerđir, kennslubćkur og rit fyrir almenning og kenndi stćrđfrćđi alla ćvi.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans