Spurning

Hvort eru hýenur skyldari hundum eða köttum?

Spyrjandi

Sesselja Fanneyjardóttir, f. 1994

Svar

Hýenur mynda sína eigin ætt, hýenuætt (Hyaenidae) sem tilheyrir ættbálki rándýra (Carnivora) og undirættbálki kattlegra dýra (Feliformia). Ætt kattardýra (Felidae) tilheyrir einnig þessum undirættbálki. Hundaættin (Canidae) tilheyrir hins vegar undirættbálki hundlegra dýra (Caniformia). Hýenur eru því skyldari köttum heldur en hundum.

Til þess að skýra þetta nánar má skoða eftirfarandi töflu:

FlokkunHýenurKettirHundar
RíkiAnimaliaAnimaliaAnimalia
FylkingChordataChordataChordata
FlokkurMammaliaMammaliaMammalia
ÆttbálkurCarnivoraCarnivoraCarnivora
UndirættbálkurFeliformiaFeliformiaCaniformia
ÆttHyaenidaeFelidaeCanidae




Þrátt fyrir þennan skydleika hýena við ketti, þá er ýmislegt í atferli þeirra sem er töluvert frábrugðið köttum. Þessi skyldleiki er því alls ekki augljós við fyrstu sýn. Ólíkt flestum kattardýrum eru hýenur hópdýr sem mynda formfasta hópa með vel skilgreindu félagskerfi. Mikil stéttaskipting er innan hópsins og er honum venjulega stýrt af einu ráðandi karldýri og einu ráðandi kvendýri. Sú aðferð hýena að veiða saman í hópum hefur reynst þeim vel og ráða þær vel við bráð sem er mun öflugri að líkamlegum burðum en þær.

Ólíkt þessu eru flest kattardýr einfarar sem helga sér óðöl og veiða einsömul. Mikilvægasta undantekningin frá þessu eru auðvitað ljónin (Panthera leo), en þau lifa í hópum þar sem ljónynjurnar sjá um veiðar og ala ungviðið upp í sameiningu. Þetta hóplíferni er mun algengara meðal hunddýra og má þar til dæmis nefna úlfa (Canis lupus) og afríska villihunda (Lycaon pictus). Líkt og hýenur lifa þeir í þéttum hópum með formfast félagskerfi og stunda veiðar í sameiningu. Það er því auðvelt að sjá í hverju misskilningurinn liggur. Erfðafræðilegar og líffærafræðilegar rannsóknir hafa hins vegar skorið eindregið úr um að hýenur eru í raun skyldari köttum en hundum þó að þeim svipi til hunda í útliti og háttum.

Nánar má lesa um hýenur, hunda og ketti í eftirfarandi svörum á Vísindavefnum: Mynd: Wikimedia Commons

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur17.4.2008

Tilvísun

Margrét Björk Sigurðardóttir. „Hvort eru hýenur skyldari hundum eða köttum?“. Vísindavefurinn 17.4.2008. http://visindavefur.is/?id=7356. (Skoðað 9.2.2010).

Höfundur

Margrét Björk Sigurðardóttirlíffræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



Leit