Spurning
Hvað er átt við þegar sagt er "þú ert kýrfættur"?
Spyrjandi
Óttar Guðlaugsson, f. 1992
Svar
Orðið kýrfættur merkir ‘útskeifur’ og virðist upphaflega fyrst og fremst hafa verið notað um hesta. Hestur er sagður kýrfættur ef styttra er á milli hækilbeinanna en hófanna. Gangurinn minnir þá dálítið á kú. Orðið virðist eitthvað hafa verið notað um fólk og þá um þá sem eru útskeifir, ganga þannig að tærnar vísa á ská út til hliðanna.
Frekara lesefni á Vísindavefnum: Mynd:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur3.9.2007
Flokkun:
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvað er átt við þegar sagt er "þú ert kýrfættur"?“. Vísindavefurinn 3.9.2007. http://visindavefur.is/?id=6785. (Skoðað 24.5.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor






