Spurning
Eru kýrhausar eitthvað sérstaklega skrýtnir, samanber máltækið "margt er skrýtið í kýrhausnum?"
Spyrjandi
Helga Ragnarsdóttir
Svar
Fátt er vitað um uppruna þessa máltækis. Það er ekki að finna í algengum málsháttasöfnum og það er ekki heldur í Íslensk-danskri orðabók Sigfúsar Blöndal frá 1920–1924 sem bendir til að starfsmenn verksins hafi ekki þekkt það. Annars hefðu þeir haft það með. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er úr skáldsögu Halldórs Laxness Sjálfstæðu fólki sem fyrst var gefin út á árunum 1934–1935. Þar lætur hann Ólaf í Ystadal segja spekingslega: ,,Jæa, margt er skrýtið í kýrhausnum“ (6. útg. 1993:78). Ekki er með þessu sagt að Halldór hafi búið sambandið til en án efa hefur sagan ýtt undir notkun þess.
Orðið kýrhaus er fyrir utan algengustu merkinguna ‘haus á kú’ notað um fólk. Í Ritmálssafni Orðabókarinnar eru aðeins tvö dæmi. Annað er úr bók eftir Stefán Júlíusson þar sem orðið er greinilega skammaryrði: ,,Hann var helvítis asnakjálki, þorskhaus, steinbítur og kýrhaus“ en hitt er úr viðtali í Morgunblaðinu 5. apríl 1964 þar sem viðmælandi svarar spyrjanda: ,,Nei, ég hafði alltaf lítið til sálarinnar, ég var óskapar kýrhaus.“ Ekki er alveg ljóst hvað átt er við, hvort viðmælandinn er að gera lítið úr þekkingu sinni eða hugrekki. Oft heyrist að kýr séu heimskar skepnur en ekki tel ég að bændur muni taka undir það.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvað er átt við þegar sagt er "þú ert kýrfættur"? eftir Guðrúnu Kvaran
Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:
Eru kýrhausar eitthvað sérstaklega skrýtnir, samanber orðatiltækið "það er margt skrýtið í kýrhausnum"? Hvaðan kemur þetta orðatiltæki?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.2.2009
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Eru kýrhausar eitthvað sérstaklega skrýtnir, samanber máltækið "margt er skrýtið í kýrhausnum?"“. Vísindavefurinn 9.2.2009. http://visindavefur.is/?id=50733. (Skoðað 18.5.2013).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor





