Spurning
Hvenær var Einstein uppi?
Spyrjandi
Pétur Marino, fæddur 1987
Svar
Albert Einstein fæddist 14. mars 1879 í bænum Ulm í Bæjaralandi, Þýskalandi, og lést 18. apríl 1955 í Princeton, Bandaríkjunum.
Einstein bjó í München mesta bernsku sína, með foreldrum sínum. Hann olli þeim áhyggjum því að hann var seinþroska. Sem barn átti hann erfitt um mál, var lítt gefinn fyrir leiki og leiddist í skóla.
Ungur að árum gerðist Einstein svissneskur ríkisborgari, en í Sviss nam hann stærðfræði og eðlisfræði. Árið 1902 fær hann vinnu á einkaleyfaskrifstofu í Bern, þar sem hann vinnur til 1909 meðan hann leggur drög að kenningum sínum í frístundum. Árið 1911 fékk Einstein prófessorsstöðu í Prag og síðan í Zürich og Berlín. Hann starfaði innan háskóla þaðan í frá.
Árið 1905 birtir Einstein þrjár merkilegar ritgerðir. Ein þeirra hét "Um rafsegulfræði hluta á hreyfingu" en í henni setur hann fram takmörkuðu afstæðiskenninguna. 1916 birti Einstein almennu afstæðiskenninguna í nokkrum ritgerðum. 1919 er kenningin staðfest með frægri athugun, við sólmyrkva, á sveigju ljóss sem berst frá fjarlægri stjörnu, vegna þyngdarafls sólar.1921 fékk Einstein Nóbelsverðlaun fyrir framlag sitt til eðlisfræðinnar. Einstein var af Gyðingaættum og hrökklaðist frá Þýskalandi nasismans til Princeton í Bandaríkjunum árið 1933. Þar bjó hann til dauðadags.
Sjá ennfremur svar við fyrirspurn um lesefni um Einstein. Einnig bendum við á góða umfjöllun NOVA um Einstein og hugmyndir hans.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur24.5.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
HMH. „Hvenær var Einstein uppi?“. Vísindavefurinn 24.5.2000. http://visindavefur.is/?id=455. (Skoðað 9.2.2010).
Höfundur
HMHheimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins



