Spurning
Í hvaða greinum eru veitt Nóbelsverðlaun?
Spyrjandi
Héðinn Árnason, fæddur 1986
Svar
Nóbelsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1901. Það var Svíinn Alfred Nobel sem fann upp dýnamitið sem stofnaði til verðlaunanna. Þau voru í fyrstu veitt í eðlisfræði, efnafræði, læknisfræði og bókmenntum og Sænska akademían sá um úthlutunina í þeim greinum en norska Stórþingið veitti friðarverðlaun Nóbels frá upphafi. Hagfræðiverðlaun hafa verið veitt frá því 1969 en Sænski seðlabankinn stofnaði til þeirra. Alls eru Nóbelsverðlaunin því sex. Verðlaunahafinn fær verðlaunapening, viðurkenningarskjal og peninga. Eini Íslendingurinn sem hefur fengið Nóbelsverðlaun er Halldór Kiljan Laxness sem fékk bókmenntaverðlaunin árið 1955.
Árið 2001 fengu eðlisfræðiverðlaunin þeir Eric A. Cornell, Wolfgang Ketterle og Carl E. Wieman. Efnafræðiverðlaunin fengu William S. Knowles, Alan G. MacDiarmid og Hideki Shirakawa. Í læknisfræði fengu Leland H. Hartwell, R. Timothy (Tim) Hunt og Sir Paul M. Nurse verðlaun. Í bókmenntum fékk Sir V.S. Naipaul verðlaun og í hagfræði fengu verðlaun George A. Akerlof, A. Michael Spence og Joseph E. Stiglitz. Friðarverðlaunin fengu Sameinuðu þjóðirnar og framkvæmdastjóri samtakanna Kofi Annan.
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.
Heimildir www.nobel.se
Mynd af Alfred Nobel: Nobel e-Museum
Mynd af Nóbel verðlaunapeningi: Nobel e-Museum
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur27.3.2002
Efnisorð
Tilvísun
Elísabet Engsbråten. „Í hvaða greinum eru veitt Nóbelsverðlaun?“. Vísindavefurinn 27.3.2002. http://visindavefur.is/?id=2244. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Elísabet Engsbråten




