Þúsundfætlur hafa allt að 200 pör af fótum. Tvö pör eru á hverjum lið fyrir utan fyrsta liðinn (höfuðið), sem er fótalaus, og næstu þrjá liði, sem eru með eitt par af fótum hver. Einnig er hver liður (fyrir utan fyrstu fjóra) með tvö pör af innri líffærum, svo sem tvö pör af taugahnoðum og tvö pör af slagæðum...
Fimm tegundir mörgæsa verpa á Suðurskautslandinu. Rannsókn sem gerð var árið 2020 á ástandi mörgæsastofna þar leiddi í ljós að samtals töldust varppör þessara fimm tegunda vera 5,77 milljón það árið.
Flestar mörgæsir á Suðurskautslandinu tilheyra tegund aðalsmörgæsa (Pygoscelis adeliae, e. Adélie penguin), all...
Í Papey er engin byggð núna en áður fyrr bjuggu þar menn.
Eyjan dregur nafn sitt af Pöpum sem sumir telja að hafa búið þar til forna. Um byggð þeirra í eyjunni er hægt að lesa í svari við spurnigunni Eru til áþreifanlegar sannanir fyrir veru papa á Íslandi fyrir landnám norrænna manna?
Papey var eina byggða...
Ágreiningur er meðal líffræðinga hvort heildartegundafjöldi mörgæsa í heiminum sé 17 til 19. Flestir líffræðingar hallast að því að tegundirnar séu bara 17 og verður miðað við það í þessu svari. Tegundir eru:
Aðalsmörgæs (Pygoscelis adeliae)
Þessi tegund lifir á Suðurheimskautslandinu og nokkrum aðliggjandi eyj...
Hér er einnig svar við spurningunni: Hvað eru gullernir stórir?
Gullörninn (Aquila chrysaetos) er meðal kunnustu stórarna heimsins enda er hann mjög útbreiddur. Heimkynni hans ná yfir stóran hluta Evrasíu en gullernir finnast einnig í Norður-Afríku og í Norður-Ameríku, aðallega í vesturhluta álfunnar, frá Alaska ...
Öll spurningin hljóðaði svona:
Verpir krían líka á suðlægum slóðum sem hún heimsækir þegar vetur ríkir á Íslandi?
Krían (Sterna paradisaea) verpir einungis á norðlægum svæðum í Evrópu og Asíu (Rússlandi), á vesturströnd Grænlands, austurströnd Kanada, heimskautaeyjum Kanada, í Alaska og norðarlega á austur...
Fiðrildi heita á latínu Lepidoptera sem þýðir hreisturvængjur. Fiðrildi hafa tvö pör vængja og eru þeir alsettir hreistri, sem er ummynduð hár, eins og sjást á vængjum hjá öðrum ættbálkum, til dæmis vorflugum sem standa fiðrildum næst á þróunarbrautinni.
...
Svarið við þessari spurningu er nei. Lundabyggðir eru nánast allt í kringum landið þó stærsta lundabyggð landsins sé í Vestmannaeyjum. Lundabyggðir við strendur Íslands skipta hundruðum og hér verður aðeins minnst á nokkrar þeirra.
Nokkrar lundabyggðir eru við Reykjavík og eru sumar þeirra mjög stórar, til dæmi...
Í hringleikahúsum Rómaveldis fóru fram bardagar af þrennum toga.
Í fyrsta lagi voru skylmingar. Skylmingaþrælar (gladíatorar) börðust, yfirleitt tveir og tveir, þar til annar særðist. Áhorfendur gáfu þá merki um hvort þeir vildu leyfa hinum særða að lifa eða hvort ætti að drepa hann.
Úr kvikmyndinni Gladiator....
Stærstur hluti íslenskra skógarþrasta (Turdus iliacus) eru farfuglar, þó þúsundir einstaklinga hafi nú orðið vetursetu í þéttbýlinu. Þessi aukning á vetursetu skógarþrasta er einkum talin vera afleiðing af stöðugra fæðuframboði og meiri trjágróðri í görðum bæjarbúa. Einnig er sennilegt að mildari vetur undanfarin ...
Tvær náskyldar hafarnartegundir skipta með sér norðurhveli jarðar. Örninn, eða haförninn (Haliaeetus albicilla), er útbreiddur frá Vestur-Grænlandi til Austur-Síberíu. Skallaörninn, eða hvíthöfðaörn (Haliaeetus leucocephalus), nær frá Aljútaeyjum austur um Alaska og Kanada til Nýfundnalands og allt suður til nyrst...
Haförninn (Haliaeetus albicilla) var friðaður á Íslandi árið 1913. Á árunum 1905 til 1908 hafði danski fuglafræðingurinn Richard Hörring ferðast um landið og sá á ferðum sínum um þekkt arnarsvæði afar fáa erni. Það var því ljóst að arnarstofninn hér á landi var hruninn og því nauðsynlegt að friða hann svo hann hyr...
Heildarfjöldi möguleika á að fá fimm spil á hendi í póker er
\[{52 \choose 5} = \frac{52!}{5! \cdot (52-5)!} = \frac{52!}{5! \cdot 47!} = 2.598.960.\]
Hér táknar ${52 \choose 5}$ tvíliðustuðul, sem lesa má um í svari sama höfundar við spurningunni Hvað er tvíliðustuðullinn C(n,k) og hvers vegna er fjöldi tv...
Köngulær (Araneae) teljast til áttfætlna (Arachnida) sem er flokkur innan fylkingar liðfætlna eða liðdýra (Arthropoda). Til áttfætlna teljast dýr sem hafa fjögur pör af fótum, tvískiptan líkama og hvorki fálmara né vængi. Til samanburðar þá hafa skordýr þrjú pör af fótum, þrískiptan líkama, fálmara og yfirleitt væ...
Áður fyrr þöktu skógar um 80-90% af Danmörku og dýrafána landsins einkenndist þess vegna af skógardýrum. Nú er stundaður mjög umfangsmikill landbúnaður í landinu og hafa skógar verið ruddir auk þess sem 95-98% af upprunalegu votlendi hefur verið þurrkað upp á með tilheyrandi fækkun votlendisdýra, svo sem froskdýra...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!