Spurning

Þrífst lundi á Íslandi bara í Grímsey og Vestmannaeyjum?

Spyrjandi

Númi Sigfússon, f. 1986

Svar

Svarið við þessari spurningu er nei. Lundabyggðir eru nánast allt í kringum landið þó stærsta lundabyggð landsins sé í Vestmannaeyjum. Lundabyggðir við strendur Íslands skipta hundruðum og hér verður aðeins minnst á nokkrar þeirra.

Nokkrar lundabyggðir eru við Reykjavík og eru sumar þeirra mjög stórar, til dæmis í Kollafirðinum. Má þar meðal annars nefna Lundey með um 10 þúsund pör og Akurey með yfir 12 þúsund pör. Lundabyggðin í Andríðsey úti fyrir Kjalarnesi er talsvert stærri en byggðirnar í Kollafirði og telst vera stærsta lundabyggðin í landi Reykjavíkur. Stöku sinnum slæðast til borgarinnar lundapysjur seint á sumrin og eru það eflaust fuglar sem komist hafa á legg úr einhverju varpinu við borgina.

Í Breiðafirði eru margar stórar lundabyggðir og hafa Breiðfirðingar frá örófi alda nýtt sér lundann til matar. Víða á Austurlandi eru stórar lundabyggðir og má þar nefna varpið í Hafnarhólmanum við Borgarfjörð eystri. Þekktasta lundavarpið á Austurlandi er sennilega í eynni Skrúði úti fyrir mynni Fáskrúðsfjarðar. Fuglafræðingar hafa metið stærð varpsins þar um 150 þúsund lundapör.

Á Vestfjörðum eru einnig víða miklar lundabyggðir svo sem við hin miklu fuglabjörg og í eyjunni Vigur í Ísafjarðardjúpi. Á Suðurlandi má minnast á Lundabyggðir á Ingólfshöfða og í Reynisfjalli við Vík í Mýrdal.

Stærstu vörpin eru þó í Vestmannaeyjum, enda er lundinn öðrum fuglum fremur einkennisfugl eyjanna. Fjöldi varpfugla í Vestmannaeyjum er talinn vera nokkrar milljónir en alls er áætlað að vel yfir 10 miljónir fugla verpi hér á landi á hverju sumri. Lundinn er sá fugl sem hefur mestan einstaklingsfjölda af íslenskum varpfuglum.

Hægt er að lesa meira um lunda í svörum við spurningunum: Mynd: L'Islandia di Alex

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur1.7.2004

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Þrífst lundi á Íslandi bara í Grímsey og Vestmannaeyjum?“. Vísindavefurinn 1.7.2004. http://visindavefur.is/?id=4384. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013