Heims um ból helg eru jólSvona hefst hinn þekkti jólasálmur Sveinbjarnar Egilssonar (1791-1852) sem sunginn er við lag Franz Gruber (1787-1863). Orðaröðin er ungum lesendum líklega framandi og jafnvel merking einstakra orða.
Hér merkir 'ból' byggð eða annað aðsetur manna, samanber orðalagið 'hvergi á byggðu ból...
Þriðja erindi sálmsins Heims um ból eftir Sveinbjörn Egilsson er svona (1856:7-8) (stafsetningu breytt):
Heyra má
himnum í frá
englasöng,
allelújá.
Friður á jörðu, því faðirinn er
fús þeim að líkna, sem tilreiðir sér
samastað syninum hjá.
Sögnin að tilreiða merkir að ‘útbúa, gera tilbúinn’ og samast...
Mörgum hefur orðmyndin meinvill í sálminum "Heims um ból" orðið að umhugsunarefni. Þar stendur:...Frumglæði ljóssins, en gjörvöll mannkindmeinvill í myrkrunum lá.
Lýsingarorðið meinvillur merkir 'fullkomlega ráðlaus, alveg villtur'. Mein- stendur þarna sem herðandi forliður með villur 'villtur', samanber að fara...
Nafnið Selsund er væntanlega dregið af Sundinu sem nefnt er í örnefnalýsingu Selsunds: "Beint á móti bænum er Ból. Stendur það fremst í Sundinu, en svo er nefnt votlent flatlendi milli Selsundsfjalls og Suðurhrauns. Í því er svonefndur Bólhellir". Gera má ráð fyrir að sel hafi staðið í sundinu þar sem Bólið er og ...
Vafist hefur fyrir mönnum hvar mörk hálendisins lægju. Hafa sumir viljað miða við tiltekna hæð yfir sjó (oftast 200, 300 eða 400 m y.s), aðrir við byggðarmörk og enn aðrir við svokallaða „hálendisbrún“ sem er glögg, há og brött, víða um land. Munur er ekki alls staðar mikill á þessum mismunandi mörkum.
Hálendin...
Atkvæði í íslensku inniheldur alltaf eitt sérhljóð og getur að auki haft eitt eða fleiri samhljóð. Eiginlega er atkvæði framburðareining og ef orð er borið fram hægt og skýrt heyrist venjulega hvar atkvæðaskilin eru. Dæmi um orð skipt í atkvæði þar sem bandstrikið sýnir skilin:á, áll, hlust
ká-pa, slak-na, ges-tu...
Til þess að svara þessari brýnu spurningu réð Vísindavefurinn í snarhasti nokkra velþekkta fornleifafræðinga. Þeir unnu áður við bílastæðgerð á Alþingi en þóttu með eindæmum seinvirkir og fóru alveg í hundana.
Fornleifafræðingarnir hófu leitina með ýtarlegri heimildarannsókn. Með ógurlegum hundakúnstum lásu þei...
Helstu heimildirnar um gríska goðafræði eru kvæði skálda á borð við Hómer og Hesíódos sem báðir voru uppi á 8. öld f.Kr. Í Hómerskviðum er ekki fjallað um tilurð mannkyns. Um efni þeirra má lesa í svari sama höfundar við spurningunni Um hvað fjalla Hómerskviður?
Í kvæði Hesíódosar Verk og dagar segir frá tilurð...
Svarfhóll er nafn á að minnsta kosti níu bæjum í landinu:
Bær í Svínadal í Hvalfjarðarsveit í Borgarfjarðarsýslu.
Bær í Stafholtstungum í Mýrarsýslu. Hann stóð á lágum öldóttum klapparhrygg.
Bær í Hraunhreppi í Mýrarsýslu.
Bær í Miklaholtshreppi í Snæfellssýslu. Þar þykir hvassviðrasamt.
Bær í Miðdölum í D...
Æviágrip
Svissneski málfræðingurinn Ferdinand de Saussure fæddist 26. nóvember árið 1857 í borginni Genf í Sviss og lést þar 22. febrúar árið 1913. Faðir hans var náttúruvísindamaður og þegar Saussure hóf háskólanám í Genf 1875 lagði hann fyrst stund á efnafræði og eðlisfræði, en sótti einnig fyrirlestra í latínu...
Það er alltaf erfitt að sannprófa hvaða gerð þjóðvísu sé ‘rétt’. Yfirleitt voru vísurnar ekki skráðar á blað fyrr en þær voru orðnar aldagamlar og höfðu brenglast í minni kynslóðanna á ýmsa lund. Því er ekki víst að elsta uppskriftin sé endilega réttust.
Elsta skrásetta gerð vísunnar sem spurt er um er frá Hor...
Í Völuspá segir frá upphafi heimsins og endalokum hans og ragnarökum eða endalokum guðanna, sem verða vegna hegðunar þeirra sjálfra og manna. Sams konar heimsslitabókmenntir voru ekki til hjá Forngrikkjum eða Rómverjum. Þar segir hvergi frá endalokum guðanna og endalokum heimsins – nema þá ef með er talin Opinberu...
Uppruna hins rauðklædda jólasveins má rekja til heilags Nikulásar sem er sagður hafa verið biskup í borginni Mýra í Tyrklandi á 4. öld e.Kr. Nikulás var meðal annars verndardýrlingur sæfarenda, kaupmanna, menntasetra og barna. Löngu seinna varð hann þekktur sem gjafmildur biskup, klæddur purpuralitaðri kápu með mí...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!