Spurning
Hvaða reglur gilda um greiningu atkvæða í íslenskum orðum?
Spyrjandi
Benedikt Guðnason
Svar
Atkvæði í íslensku inniheldur alltaf eitt sérhljóð og getur að auki haft eitt eða fleiri samhljóð. Eiginlega er atkvæði framburðareining og ef orð er borið fram hægt og skýrt heyrist venjulega hvar atkvæðaskilin eru. Dæmi um orð skipt í atkvæði þar sem bandstrikið sýnir skilin:á, áll, hlustSkipting orðs í atkvæði og skipting orðs milli lína þarf ekki að vera hin sama. Orðunum í fyrstu línunni er ekki hægt að skipta milli lína. Orðunum kápa og slakna er ekki skipt milli lína en gestur skiptist gest-ur. Vesalingur skiptist milli lína ves-alingur, vesal-ingur, vesaling-ur og verðbólga skiptist í verð-bólga.
ká-pa, slak-na, ges-tur
ves-al-ing-ur, verð-ból-ga
Frekara lesefni:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur12.1.2009
Efnisorð
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvaða reglur gilda um greiningu atkvæða í íslenskum orðum?“. Vísindavefurinn 12.1.2009. http://visindavefur.is/?id=50067. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor, forstöðumaður Orðabókar Háskólans




