Hitt er svo annað mál að til eru dýrategundir sem nefnast drekar og teljast til áttfætlna. Þeir líkjast sporðdrekum og á ensku kallast þeir raunar gervisporðdrekar (e. pseudoscorpion). Á Íslandi eru til tvær tegundir dreka, húsadreki (Chelifer cancroides) og mosadreki (Neobisium carcinoides). Hægt er að lesa meira um drekana í svari við spurningunni Eru til drekar á Íslandi?
Mynd: Chelifer.com
Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.