Spurning
Hvernig losnar maður við silfurskottur?
Spyrjandi
Elinborg Friðgeirsdóttir, Hulda Stefánsdóttir, Hilmar Bjarnason
Svar
Silfurskottur (Lepisma saccharina) eru meðal algengustu meindýra í híbýlum manna hér á landi. Algengast er að menn eitri fyrir silfurskottunum til að losna við þær. Þá er venjulega kallaður til sérfræðingur á þessu sviði, meindýraeyðir, þar sem sérstök leyfi þarf til að nota eiturefnin sem beitt er gegn silfurskottunum.
Silfurskottur eru nánast blindar og nota langa fálmara til að skynja umhverfi sitt.
Meindýraeyðirinn eitrar á þeim svæðum í húsinu þar sem líklegast er að silfurskotturnar haldi til. Það er fyrst og fremst á svæðum þar sem raki er mikill, en egg silfurskottunnar þroskast til dæmis ekki nema rakastig fari yfir 40%. Einnig er eitrað meðfram veggjum en silfurskottur fylgja oft veggjum þegar þær ferðast um enda eru þær nánast blindar og skynja umhverfið með löngum fálmurum.
Algengasta eiturefnið sem notað er við útrýmingu silfurskotta nefnist deltametrín og er það framleiðsluheiti á efnasambandinu síanó-(3-fenoxífeníl)-metíl. Þetta efni ræðst á taugakerfi hryggleysingja og dugar því einnig vel á önnur meindýr í híbýlum svo sem flær, kakkalakka og bjöllur.

Hér sést þrívíddarbygging deltametríns eða síanó-(3-fenóxífeníl)-metíl.
Efnið brotnar hægt niður og heldur því virkni sinni í margar vikur eftir úðun. Það er því mikilvægt að húsráðendur fari eftir þeim leiðbeiningum sem meindýraeyðirinn setur þeim svo að áhrifin nýtist sem best.
Frekara lesefni á Vísindavefnum eftir sama höfund:
- Af hverju koma silfurskottur í hús? Tengist það rakaskemmdum eða leka?
- Er eitthvert dýr sem lifir á silfurskottum?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.10.2007
Flokkun:
Tilvísun
JMH. „Hvernig losnar maður við silfurskottur?“. Vísindavefurinn 9.10.2007. http://visindavefur.is/?id=6839. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
JMHlíffræðingur





