Síðan þá hafa margar konur gegnt embætti forseta, sumar lýðræðislega kjörnar en aðrar tekið við embætti með öðrum hætti. Árið 2006 var Ellen Johnson-Sirleaf kosin forseti Líberíu og varð þá fyrsti þjóðkjörni kvenforsetinn í Afríku. Nú er svo komið að Norður-Ameríka er eina heimsálfan þar sem kona hefur ekki gegnt embætti forseta. Heimildir og mynd:
- Wikipedia.org: List of elected or appointed female heads of state
- Zárate's Political Collections
- Worldwide Guide to Women in Leadership
- Mynd: Superfrauen - Biografien beruhmter Frauen
Þetta svar er eftir nemanda í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni.