Spurning

Af hverju er Marsjeppinn kallaður Curiosity?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Könnunarjeppanum Curiosity, einnig þekktur sem Mars Science Laboratory (MSL), var skotið á loft 26. nóvember 2011. Jeppinn á að rannsaka hvort aðstæður á Mars voru einhvern tímann, eða eru jafnvel í dag, heppilegar fyrir örverulíf. Jeppinn lenti í Gale-gígnum á Mars klukkan 05:17:57 að íslenskum tíma þann 6. ágúst 2012 og bárust fyrstu myndir fáeinum mínútum síðar.

Mars Science Laboratory þótti ekkert sérstaklega þjált og eftirminnilegt nafn. Þess vegna stóð NASA fyrir keppni meðal bandarískra skólabarna á aldrinum 5 til 18 ára í að gefa jeppanum nýtt nafn í samvinnu við Walt Disney, Pixar og teiknimyndina Wall-E. Yfir 9000 tillögur bárust og fékk almenningur að greiða níu bestu tillögunum atkvæði sitt.

Þann 27. maí 2009 tilkynnti NASA að Mars Science Laboratory skildi nefndur Curiosity eftir uppástungu 12 ára skólastúlku frá Kansas í Bandaríkjunum, Clöru Ma að nafni. Fyrir vikið fékk hún að rita verðlaunatillöguna á jeppann sjálfan.


Clara Ma við líkan af Marsjeppanum Curiosity.

Forverar Curiosity eru könnunarjepparnir Opportunity og Spirit sem lentu á Mars í janúar árið 2004. Þessir jeppar gengu upprunalega undir heitunum MER-1 og MER-2 en rétt eins og Curiosity fengu þeir ný nöfn eftir samkeppni á meðal skólabarna. Tillöguna að nöfnunum Opportunity og Spirit átti Sofi Collis frá Arizona sem þá var níu ára gömul.

Mynd:
Þetta svar er í grunninn hluti af lengri pistli um Curiosity en með viðbótum frá Vísindavefnum. Pistilinn í heild má finna á Stjörnufræðivefnum. Svarið er birt með góðfúslegu leyfi.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur13.8.2012

Tilvísun

Sævar Helgi Bragason og EDS. „Af hverju er Marsjeppinn kallaður Curiosity?“. Vísindavefurinn 13.8.2012. http://visindavefur.is/?id=63038. (Skoðað 20.5.2013).

Höfundar

Sævar Helgi Bragasonnemi í stjarneðlisfræðiEDS



Leit


Vísindadagatalið

Hans Christian Ørsted
(1777-1851)
( Fyrri Næsti )

Danskur eðlis- og efnafræðingur, uppgötvaði að rafstraumar skapa segulsvið kringum sig og hafa t.d. áhrif á segulnálar. Hafði einnig áhrif á heimspeki og vísindamiðlun á sinni tíð.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013