Spurning

Verður heimsendir árið 2012? - Myndband

Spyrjandi

Bjarnfinnur Ragnar Þorkelsson, Jón Daði Böðvarsson og fleiri

Svar

Mikið hefur borið á á ýmiss konar heimsendaspám sem allar eiga það sameiginlegt að spá fyrir um endalok heimsins árið 2012. Nákvæmlega hvernig heimurinn mun farast og af hvaða ástæðum fer svo nokkuð eftir spánni hverju sinni. Í sumum spám kemur fram að heimsendir verði vegna kjarnorkustríðs; í öðrum er því spáð að segulpólarnir muni skipta um stöðu, segulsviðið hverfi og við verðum geislun að bráð; enn aðrar halda því fram að risapláneta muni fara um sólkerfið og eyða öllu lífi; og að lokum segja einhverjar að jörðin, sólin og miðja Vetrarbrautarinnar verði í beinni línu, og að það sé af einhverjum ástæðum slæmt.

This text will be replaced

Hægt er að lesa meira um meintan heimsendi árið 2012 í svari Gunnars Þórs Magnússonar við spurningunni Verður heimsendir árið 2012?

Myndbandið er einnig aðgengilegt á YouTube-síðu Vísindavefsins og á Vimeo. Myndbandið er unnið í samstarfi við Áttavitann.

Aðrir spyrjendur voru:
Smári Freyr Snæbjörnsson, Sveinbjörg Birta Ágústsdóttir og Sveinn Ólafsson.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur22.6.2012

Tilvísun

Gunnar Þór Magnússon. „Verður heimsendir árið 2012? - Myndband“. Vísindavefurinn 22.6.2012. http://visindavefur.is/?id=62824. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

Gunnar Þór Magnússonstærðfræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans