Spurning

Hvað er jarðköttur?

Spyrjandi

Ritstjórn

Svar

Jarðkettir (Suricata suricatta) eru smávaxin dýr af ættbálki rándýra. Þeir lifa í suðurhluta Afríku, nánar tiltekið í Kalahari-eyðimörkinni í Botsvana, Namib-eyðimörkinni í Namibíu og Angóla og auk þess í Suður-Afríku.

Jarðkettir lifa neðanjarðar í göngum sem þeir grafa sjálfir. Þeir hafa mjög ríkt hópeðli og lifa gjarnan saman í hópum sem telja 20-30 dýr.


Jarðköttur í varðstöðu.

Jarðkettir eru grannvaxnir með smágert andlit, lítil eyru og svarta hringi í kringum augun. Þeir eru ljós- til dökkgráir að lit með dökkar rendur á bakinu og dökkan brodd á rófunni. Jarðkettir eru fremur litlir, einungis um 25-35 cm á lengd en rófa þeirra er um 17-25 cm.

Jarðkettir éta meðal annars skordýr, köngulær og sporðdreka en einnig litla snáka, fugla og nagdýr. Þeir eru þekktir fyrir að standa þráðbeinir á afturfótunum en þá eru þeir í varðstöðu, til að mynda þegar önnur dýr í hópnum leita ætis.

Heimildir: Mynd:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur25.6.2012

Tilvísun

Hrafnhildur Jóna Steingrímsdóttir og Jenný Jónsdóttir. „Hvað er jarðköttur?“. Vísindavefurinn 25.6.2012. http://visindavefur.is/?id=62823. (Skoðað 21.5.2013).

Höfundar

Hrafnhildur Jóna Steingrímsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksinsJenný Jónsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Robert Owen
(1771-1858)
( Fyrri Næsti )

Velskur stjórnspekingur, einn af frumkvöðlum sósíalisma og samvinnuhreyfingar. Hélt því fram að persónuleiki mótaðist af umhverfi, sbr. mannauðshugtakið nú á dögum.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans