Spurning

Hvernig getur það staðist að nú sé magn aflandskróna að aukast?

Spyrjandi

Jón Ingólfur Magnússon

Svar

Það er ekki beinlínis svo að magn aflandskróna hafi verið að aukast. Sé litið á það hver þróunin hefur verið, hefur aflandskrónum fækkað undanfarin ár eins og sagt er frá í nýbirtu riti Seðlabanka Íslands, Fjármálastöðugleika, á blaðsíðu 59 og þar á eftir. Þar kemur fram að þessar krónueignir hafi minnkað um 145 milljarða frá september 2009 og séu nú um 425 milljarðar króna.


Seðlabanki Íslands.

Á hinn bóginn segir einnig í ritinu að áhrif af uppgjörum fallinna fjármálafyrirtækja gætu orðið þau að krónueignir af þessu tagi aukist um 190 milljarða króna. Hver þróunin verður með hinar eiginlegu aflandskrónur og þær viðbótarkrónur af þessu tagi sem bæst gætu við í uppgjörum fallinna fjármálafyrirtækja er að sjálfsögðu einhverri óvissu háð. Það er þó rétt að geta þess að fram kom í máli seðlabankastjóra við kynningu á skýrslunni 6. júní 2012 að það vandamál væri viðráðanlegt, sérstaklega í ljósi þess gjaldeyris sem innlendir aðilar koma til með að fá frá föllnu bönkunum.

Um þetta er hægt að lesa meira í skýrslunni Fjármálastöðugleiki 2012/1 á blaðsíðu 59-63.

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur13.6.2012

Tilvísun

Stefán Jóhann Stefánsson. „Hvernig getur það staðist að nú sé magn aflandskróna að aukast?“. Vísindavefurinn 13.6.2012. http://visindavefur.is/?id=62764. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

Stefán Jóhann Stefánssonritstjóri í Seðlabanka Íslands



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans