Spurning
Hvernig er óðal snæuglu?
Spyrjandi
Katla Dögg Traustadóttir, f. 1998
Svar
Snæuglan (Bubo scandiacus) er ugla túndrunnar. Varplendi hennar er á svæðum norður af 60. gráðu norðlægrar breiddar, allt í kringum norðurskaut. Hún velur sér búsvæði á trjálausum sléttlendum fyrir norðan barrskógabeltið í freðmýrum, það er túndrum, Norður-Ameríku og Evrasíu.![]() |
Sum ár eru kölluð læmingjaár. Þá er ofgnótt af þessu sérstæða nagdýri. Þegar svo ber undir eru læmingjar nær eina fæða snæuglunnar á varptíma. Utan slíkra tímabila þarf snæuglan að snúa sér að öðrum tegundum en þar má nefna rjúpu, andfugla og jafnvel svartfugla, auk fjölda spendýrategunda.
Óðul snæugla eru yfirleitt geysilega víðfeðm en fuglarnir þurfa mikla fæðu fyrir sísvanga unga sína. Talið er að fæðuþörf meðalstórs varps sé ríflega 1.500 læmingjar.
Snæugla verpir yfirleitt seint í maí en fjöldi eggja er á bilinu 5-14. Þessum eggjum verpir fuglinn yfir nokkurra daga tímabil. Í góðu árferði og þegar vel gefur í veiði getur viðkoman orðið mikil. Víðast hvar sveiflast stofnstærð snæuglunnar mjög í takt við stofnstærð læmingjans og undirstrikar það mikilvægi hans í fæðu snæuglunnar á varptíma.
Mynd:
- Snowy Owl - Wikipedia, the free encyclopedia. (Sótt 6.6.2012).
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur18.7.2012
Flokkun:
Efnisorð
snæugla óðal túndra freðmýri varplendi búsvæði hreiður fæða veiðar læmingjar varptími fæðuþörf egg fjöldi
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hvernig er óðal snæuglu?“. Vísindavefurinn 18.7.2012. http://visindavefur.is/?id=62687. (Skoðað 25.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur






