Spurning

Hvað tekur um það bil langan tíma að fljúga frá Íslandi til Frakklands?

Spyrjandi

Anna Sigrún Gunnarsdóttir, f. 1999

Svar

Þegar ferðatími flugfélaga frá Keflavík til Parísar, höfuðborgar Frakklands, er skoðaður sést að það tekur tæplega 3 klukkustundir og 30 mínútur að fljúga þar á milli.

Einnig er hægt að skoða hve langt er á milli Keflavíkur og Parísar og hve hratt farþegaflugvélar fljúga. Hér verður þó að hafa í huga að flugvélar fljúga ekki í beinni línu á milli áfangastaða en við skulum líta fram hjá því hér.


Það tekur tæplega 3 klukkustundir og 30 mínútur að fljúga frá Keflavík til Parísar!

Miðað við að flugvél fljúgi á 900 km hraða á klukkustund og að fjarlægðin sé 2.250 km þá tæki ferðalagið 2 klukkustundir og 30 mínútur. Flugvélar þurfa þó einhvern tíma til að ná áðurnefndum hraða, auk þess sem þær þurfa að hægja vel á sér fyrir lendingu.

Þess má til gamans geta að ef unnt væri að keyra til Parísar í beinni línu frá Keflavík tæki sú ferð 25 klukkustundir ef ekið væri á 90 kílómetra hraða á klukkustund.

Heimildir: Mynd:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur20.6.2012

Tilvísun

Sindri Snær Friðriksson og Sindri Páll Stefánsson. „Hvað tekur um það bil langan tíma að fljúga frá Íslandi til Frakklands?“. Vísindavefurinn 20.6.2012. http://visindavefur.is/?id=62671. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundar

Sindri Snær Friðrikssonnemandi í Háskóla unga fólksinsSindri Páll Stefánssonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans