Spurning

Éta einhverjar fisktegundir svartfuglsegg?

Spyrjandi

Hulda Ósk Jónsdóttir, f. 1997

Svar

Það er harla erfitt fyrir fiska að komast í tæri við svartfuglsegg þar sem svartfuglar verpa á þurru landi líkt og aðrir fuglar. Þegar talað er um svartfugla er átt við algenga sjófugla við Ísland, til dæmis lunda (Fratercula arctica), langvíu (Uria aalge), stuttnefju (Uria lomvia) og álku (Alca torda).


Erfitt getur reynst fyrir fiska að komast í tæri við svartfuglsegg. Lundi telst til svartfugla.

Engin fisktegund étur þess vegna svartfuglsegg, að minnsta kosti ekki að staðaldri.

Mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur29.5.2012

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Éta einhverjar fisktegundir svartfuglsegg?“. Vísindavefurinn 29.5.2012. http://visindavefur.is/?id=62562. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans