Spurning
Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju?
Spyrjandi
Bjarni Ólafsson, f. 1997
Svar
Svarið við þessari spurningu er einfalt: Já, mjólk flóðhesta er bleik á litinn!![]() |
Flóðhestar seyta tveimur merkilegum efnasamböndum úr húðinni. Þau eru það einstök í dýraríkinu að þau bera heiti flóðhesta. Þetta eru efnin hipposudoric-sýra og norhipposudoric-sýra. Efnin eru rauðleit og hafa það hlutverk að verja flóðhestana fyrir sterkum geislum sólar og eru einnig bakteríudrepandi. Eitthvað af þessum efnum smitast í mjólkina þar sem hún berst úr mjólkurkirtlunum um rás og í spenann. Þetta gefur mjólk flóðhesta ljósbleikan blæ.
Mynd:
- en.wikipedia.org - Hippopotamus. Sótt 15.5.2012.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur22.5.2012
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju?“. Vísindavefurinn 22.5.2012. http://visindavefur.is/?id=62500. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur






