Spurning

Hvað er eldgos heitt?

Spyrjandi

Sindri Ingimundarson, f. 1996

Svar

Efnasamsetning gosefna er gjarnan notuð til að flokka bergkvikuna sem kemur upp í eldgosum og gosbergið sem til verður þegar hún storknar á yfirborð jarðar. Þannig er talað um basíska, ísúra eða súra kviku og/eða storkuberg. Ræður þar mestu kísilsýrumagn kvikunnar eða bergsins, sem er lægst í basísku bergi og hæst í súru bergi.


Hiti bergkvikunnar sem kemur upp í eldgosum fer eftir efnasamsetningu hennar.

Hiti kvikunnar þegar hún streymir upp á yfirborð jarðar fer eftir efnasamsetningu hennar. Þannig eru basalthraun, en þau eru basísk og algengasta gerð hrauna á Íslandi, yfirleitt á bilinu 1150 – 1250 gráðu heit þegar þau ná til yfirborðs jarðar. Kvika sem inniheldur meira kísilmagn (og er því súrari) er kaldari þegar hún berst upp á yfirborð. Sem dæmi má nefna að andesít, sem er ísúrt berg, er á bilinu 900-1050 gráðu heitt og súra kvikan sem líparít myndast úr er talin vera á bilinu 800-900 gráðu heit.

Á Vísindavefnum eru fjölmörg önnur svör um eldgos, til dæmis: Heimildir og mynd:
Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans, fær bestu þakkir fyrir góðar ábendingar við gerð þessa svars.

Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur2.10.2006

Vefnámskeið

Þetta svar er í vefnámskeiðinu Eldgos. Lestu hin svörin hér:

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12

Tilvísun

EDS. „Hvað er eldgos heitt?“. Vísindavefurinn 2.10.2006. http://visindavefur.is/?id=6230. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

EDSlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans