Spurning

Hvađa plöntur eru tvíkímblöđungar?

Spyrjandi

Jóhannes Johannessen

Svar

Tvíkímblöđungar tilheyra fylkingu dulfrćvinga (Anthophyta) eđa blómstrandi plantna. Í klassískri flokkunarfrćđi plantna er dulfrćvingum skipt í ţrjá undirflokka: magnólíta (Magnoliids), einkímblöđunga (Monocotyledones) og tvíkímblöđunga (Eudicotyledones). Ađeins 3% dulfrćvinga tilheyra magnólítum, en ţeir eru taldir vera forverar bćđi ein- og tvíkímblöđunga.

Einkímblöđungar og tvíkímblöđungar draga heiti sitt af fjölda kímblađa sem eru til stađar í frćjum plantnanna, en eins og nöfnin gefa til kynna hafa tvíkímblöđungar tvö kímblöđ og einkímblöđungar ađeins eitt kímblađ.


Á vinstri myndinni sést kímblađ einkímblöđungs teygja sig upp úr moldinni. Myndin hćgra megin er af tvíkímblöđungi.

Ţađ eru ţó fleiri atriđi sem greina ţessa tvo hópa í sundur. Blómhlutar tvíkímblöđunga, svo sem krónublöđ, bikarblöđ og frćflar, eru til dćmis alltaf margfeldi af fjórum eđa fimm. Hjá einkímblöđungum eru blómhlutarnir hins vegar ţrídeildir. Í blöđum tvíkímblöđunga eru ćđstrengirnir greinóttir en hjá einkímblöđungum liggja ţeir alltaf samsíđa, hvort sem ţeir eru bogstrengjóttir eđa beinstrengjóttir.

Tvíkímblađa plöntur geta jafnframt veriđ ýmist trékenndar eđa jurtkenndar en einkímblöđungar eru nánast alltaf jurtkenndir. Einu trékenndu einkímblöđungarnir eru pálmar og bambusplöntur.






















Páskaliljurnar vinstra megin eru einkímblöđungar en sóleyin hćgra megin er tvíkímblöđungur

Tvíkímblöđungar eru mun fleiri en einkímblöđungar eđa um 170 ţúsund tegundir á móti 65 ţúsund tegundum. Til tvíkímblöđunga teljast flest lauftré og runnar, sem og algengar blómplöntur eins og sóleyjar, fíflar, bláklukkur og baldursbrá. Til einkímblöđunga teljast hins vegar öll grös, liljur og brönugrös. Flestar mikilvćgar nytjaplöntur, svo sem kornplöntur eins og hveiti, maís, bygg og rúgur, eru jafnframt einkímblöđungar.

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Heimildir og myndir:
  • Raven, P.H., R.F. Evert og S.E. Eichhorn. 1999. Biology of Plants. W.H. Freeman and Company/Worth Publishers, New York.
  • Wikimedia Commons

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur12.9.2006

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvađa plöntur eru tvíkímblöđungar?“. Vísindavefurinn 12.9.2006. http://visindavefur.is/?id=6186. (Skođađ 19.5.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffrćđingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Nćsti )

Stćrđfrćđingur og brautryđjandi í stćrđfrćđiiđkun á Íslandi. Skrifađi bćđi vísindaritgerđir, kennslubćkur og rit fyrir almenning og kenndi stćrđfrćđi alla ćvi.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans