Spurning
Hvað er landafræði?
Spyrjandi
Sigurður Jakobsson
Bjarki Rúnarsson
Erla Haraldsdóttir
Svar
Áður en lengra er haldið er rétt að taka fram að ýmist er notað orðið landafræði eða landfræði. Almenningi er sjálfsagt tamara að nota hið fyrrnefnda en innan Háskóla Íslands er greinin kölluð landfræði og sá sem útskrifast þaðan hefur titilinn landfræðingur. Í þessu svari verður orðið landfræði notað. Hið alþjóðlega fræðiheiti greinarinnar er hins vegar „geógrafía“, sem komið er úr grísku og þýðir „skrif um jörðina“.Landfræðingar vilja frekar nota orðið landfræði en landafræði, þar sem í hugum margra er landafræði nátengd utanbókarlærdómi á örnefnum, staðháttum og staðreyndum á borð við: Hvað heita firðirnir í Ísafjarðardjúpi, í gegnum hvaða lönd rennur Dóná, hver er stærsti jökull Evrópu, hver er höfuðborg Indlands og hvað heitir stærsta stöðuvatnið í Afríku? Þó það sé ágætt að kunna skil á staðreyndum þá eru viðfangsefni landfræðinnar önnur og meiri.
Landfræðin er þverfagleg grein þar sem lögð er áhersla á að samhæfa þekkingu úr ýmsum áttum til þess að fá breiða yfirsýn yfir verkefni og viðfangsefni. Stundum er sagt að landfræðingar „viti pínulítið um allt mögulegt“. Þó þetta sé ekki alveg réttmæt lýsing þá er landfræðin mjög fjölbreytt grein þar sem viðfangsefnið getur verið jörðin öll, tiltekin svæði eða einstakir staðir.
Landfræði snýst um sambúð manns og náttúru, sem og ýmsar aðrar hliðar mannlegs samfélags. Náttúrulandfræði fæst við hina ytri ásýnd landsins; landmótun, jarðveg, gróður og veðurfar svo eitthvað sé nefnt. Mannvistarlandfræði fæst við búsetu mannsins á jörðinni og einnig við efnahags- hag- og félagslega þróun staða og svæða. Kortlagning og greining lands og landupplýsinga hefur frá fornu fari skipað veglegan sess í greininni og eru tölvuvædd landupplýsingakerfi, byggð á sérstökum aðferðum landfræðinga, orðin mikilvæg á mörgum sviðum þjóðfélagsins. Við þetta má bæta að náttúrulandfræði og mannvistarlandfræði eiga sér snertiflöt í umhverfismálum, þar sem nýting náttúruauðlinda og áhrif mannlegra athafna á náttúruna eru í brennidepli. Ferðaþjónusta er önnur ört vaxandi grein þar sem landfræðin kemur mikið við sögu.
Eins og sjá má tengist landfræðin bæði félags- og náttúruvísindum og er það misjafnt eftir skólum hvernig hún er flokkuð. Í Háskóla Íslands er landfræði kennd innan Líf- og umhverfisvísindadeildar, eins og ferðamálafræði, líffræði, lífefna- og sameindalíffræði, og þeir sem útskrifast þaðan eru með B.Sc. próf. Í mörgum skólum erlendis er hins vegar hægt að útskrifast með B.A. próf í greininni.
Landfræðinga er að finna víða í atvinnulífinu, hjá ríkinu, sveitarfélögum, einkafyrirtækjum og sem sjálfstæða ráðgjafa, en störf þeirra endurspegla fjölbreytni fagsins. Þeir stunda rannsóknir og sinna kennslu á öllum skólastigum. Þeir sinna kortagerð, hönnun og rekstri landfræðilegra upplýsingakerfa, náttúruvernd og ráðgjöf í umhverfis-, skipulags-, atvinnu-, samgöngu- og byggðamálum. Þeir koma að ferðaþjónustu, vinna við fjölmiðla og sinna upplýsingaöflun og miðlun, svo nokkur dæmi séu nefnd. Einn landfræðingur starfar meira að segja á Vísindavefnum.
Kort:
Karl Benediktsson prófessor í mannvistarlandfræði við HÍ fær bestu þakkir fyrir ábendingar við gerð þessa svars.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur10.8.2006
Flokkun:
Tilvísun
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvað er landafræði?“. Vísindavefurinn 10.8.2006. http://visindavefur.is/?id=6117. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttirlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins





