Sólin Sólin Rís 05:12 • sest 21:41 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 00:00 • Sest 00:00 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 08:09 • Síðdegis: 20:27 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 02:12 • Síðdegis: 14:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur orðið timburmenn?

Guðrún Kvaran

Hér er einnig svarað spurningunni:
Hvort er rétt að nota orðið timburmenn eða timburmenni um það þegar fólk er timbrað?

Orðið timburmenn ‘höfuðverkur og önnur vanlíðan eftir drykkju’ er tekið að láni úr dönsku þar sem orðið tømmermænd hefur sömu merkingu. Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er úr auglýsingu í blaðinu Fjallkonunni frá 1891 (bls. 192). Þar segir: ,,Margar tegundir kaffibrauðs ... fínasta Scotch Whisky, hið eina í bænum sem enginn fær af hina leiðu timbrmenn.“

Orðið timburmaður í eiginlegri merkingu ‘trésmiður’ er aftur á móti gamalt í málinu.

Hjá Orðabók Háskólans er ekki að finna nein dæmi um orðið timburmenni.

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

2.6.2006

Spyrjandi

Eiður Ágústsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið timburmenn?“ Vísindavefurinn, 2. júní 2006. Sótt 27. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=5992.

Guðrún Kvaran. (2006, 2. júní). Hvaðan kemur orðið timburmenn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=5992

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur orðið timburmenn?“ Vísindavefurinn. 2. jún. 2006. Vefsíða. 27. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=5992>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...