Spurning

Af hverju grænkar grasið á sumrin en verður grárra á veturnar?

Spyrjandi

Thelma Dögg Pálsdóttir, f. 1997

Svar

Grasið er grænt vegna litarefnisins blaðgrænu (Chlorophyll) sem er staðsett í grænukornum í laufblöðum plöntunnar. Þetta efni sinnir einu mikilvægasta hlutverkinu í plöntunni sem er kallað ljóstillífun. Nánar má lesa um græna litinn og ljóstillífun í svari Kesara Anamthawat-Jónsson við spurningunni: Hvers vegna eru plöntur grænar en ekki fjólubláar eða svartar?

Þegar haustar, daginn tekur að stytta og sólarljósið minnkar hættir grasið að framleiða blaðgrænu og efnið sem fyrir er brotnar niður. Við það missir grasið græna litinn og fær þennan gráa eða grábrúna lit sem það hefur yfir veturinn.



Lesa má um litabreytingar plantna á haustin í svörunum Hvers vegna verða laufblöðin gul og rauð á haustin? eftir Ólaf Patrick Ólafsson og Af hverju koma haustlitirnir? eftir Kesara Anamthawat-Jónsson

Mynd:
Þetta svar er í flokknum „bekkirnir spyrja“ þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur23.5.2011

Tilvísun

EDS. „Af hverju grænkar grasið á sumrin en verður grárra á veturnar?“. Vísindavefurinn 23.5.2011. http://visindavefur.is/?id=59784. (Skoðað 20.6.2013).

Höfundur

EDS



Leit


Vísindadagatalið

Marteinn Lúter
(1483-1546)
( Fyrri Næsti )

Þýskur guðfræðingur, oft talinn upphafsmaður siðaskiptanna. Andmælti aflátssölu og valdi páfans, taldi Biblíuna einu heimildina um orð Guðs og lagði áherslu á lestur hennar.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans