Spurning
Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?
Spyrjandi
Leikskólinn Klambrar
Svar
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar er lengsta brú Íslands brúin yfir Skeiðará en hún er 880 metra löng. Hún er töluvert lengri en næstlengsta brú landsins en það er Borgarfjarðarbrúin, sem er 520 metra löng.Skeiðarárbrúin er einbreið með fimm útskotum þar sem bílar geta mæst.
Bygging brúarinnar hófst árið 1972 og hún var tilbúin að fullu þann 14. júlí 1974. Þegar framkvæmdum lauk var hringvegurinn um Ísland loks endanlega tilbúinn en að því hafði verið stefnt síðan árið 1967. Þegar brúin var vígð var hún 904 metra löng en við Skaftárhlaupið 1996 skemmdist hún og styttist í kjölfarið um 24 metra þegar hún var löguð.
Þegar brúin var reist var hún talin vera verkfræðilegt afrek þar sem hún var byggð á djúpum sandi yfir árfarveg þar sem reglulega eru jökulhlaup.

Þar sem Skeiðarárbrúin er einbreið er hún ekki stærst ef tekið er tillit til flatarmálsins heldur hefur Borgarfjarðarbrúin þar vinninginn. Flatarmál Skeiðarárbrúar er 3.870 m2 en Borgarfjarðarbrúarinnar 4.659 m2.
Borgarfjarðarbrúin var vígð í september árið 1981 og stytti það leiðina yfir Borgarfjörðinn töluvert, eða um ellefu kílómetra.
Hægt er að skoða lista yfir lengstu og stærstu brýr landsins á vef Vegagerðarinnar.
Frekara lesefni af Vísindavefnum:
- Hvað veldur jökulhlaupum og hvaða hætta stafar af þeim? eftir Tómas Jóhannesson
- Hver er vatnsmesta á Íslands? eftir EDS
- Hver eru lengstu göng Íslands? eftir EDS
- Hver er lengsta á á Íslandi og hvað er hún löng? eftir Emilíu Dagnýju Sveinbjörnsdóttur
- Vefur Vegagerðarinnar. Skoðað 23.6.2010.
- Skeiðarárbrú af Wikipedia. Skoðað 23.6.2010.
- Vegur.is um leiðina á milli Reykjavíkur og Borgarness. Skoðað 23.6.2010.
- Vegur.is um ár og sjó. Skoðað 23.6.2010.
- Mynd af Skeiðarárbrú. Sótt 23.6.2010.
- Mynd af Borgarfjarðarbrú. Sótt 23.6.2010.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.7.2010
Flokkun:
Tilvísun
Haukur Hannesson. „Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?“. Vísindavefurinn 14.7.2010. http://visindavefur.is/?id=56612. (Skoðað 22.5.2013).
Höfundur
Haukur Hannessonfyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins




