Spurning
Hvađ er kínín nákvćmlega?
Spyrjandi
Jóhann D. Magnússon, f. 1991
Svar
Kínín er ţađ sem nefnist lýtingur (e. alkaloid) á íslensku. Önnur orđ yfir sama hugtak eru alkalóíđi, beiskjuefni og plöntubasi. Í svari viđ spurningunni Hvađ er alkaloid og hvernig er ţađ íslenskađ? segir ţetta um lýting:Lýtingur er flokkur basískra, lífrćnna köfnunarefnissambanda sem myndast í plöntum. Lýtingar ţjóna oft vistfrćđilegu hlutverki í plöntunum, veita ţeim međal annars vörn gegn sýkingum eđa ágangi skordýra. Margir lýtingar hafa einnig reynst hafa margvísleg áhrif á mannslíkamann. Ţessi efni koma oftast fyrir sem sölt lífrćnna sýrna og eru flest óleysanleg í vatni.Kínín, morfín og ópíum eru allt dćmi um lýtinga sem hafa veriđ notađir sem lyf.

Kínín myndast í berki kínatrjáa sem vaxa í hitabelti Suđur-Ameríku. Kínín hefur einnig veriđ framleitt á rannsóknarstofum. Kínín er velţekkt lyf viđ mýrarköldu eđa malaríu en Alţjóđaheilbrigđismálastofnunin mćlir ekki lengur međ ţví sem fyrsta kosti gegn sjúkdómnum.
Heimildir og mynd:
- Hvađ er alkaloid og hvernig er ţađ íslenskađ? eftir Einar Örn Ţorvaldsson
- Grein um Quinine á Wikipedia.org. Skođuđ 6.5.2010.
Um ţessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur17.5.2010
Flokkun:
Tilvísun
JGŢ. „Hvađ er kínín nákvćmlega?“. Vísindavefurinn 17.5.2010. http://visindavefur.is/?id=55990. (Skođađ 21.5.2013).
Höfundur
JGŢ





