Spurning
Hvað er samfélag?
Spyrjandi
Þuríður Rún, f. 1986
Svar
Samfélag er hópur fólks sem býr saman í skipulögðum félagsskap. Fólk sem hefur samskipti hvert við annað myndar samfélag, og samfélögin geta verið bæði lítil og stór. Minnstu samfélögin sem maður tilheyrir eru fjölskyldan og vinahópurinn. Næst kemur sveitarfélagið, þá Ísland, Evrópa og loks alheimssamfélagið sem allir íbúar jarðar eru hluti af.
Allir eru hluti af alþjóðasamfélaginu.
Margir rugla saman hugtökunum samfélag og þjóðfélag. Samfélagið er miklu víðara hugtak því það nær frá minnstu einingum (til dæmis fjölskyldunni) yfir í alheimssamfélagið (alla jarðarbúa). Þjóðfélag er miklu þrengra hugtak en það er skilgreint sem hópur fólks sem lifir saman í ríki, með sameiginlegu stjórnkerfi og gjaldmiðli. Íslenska ríkið er dæmi um þjóðfélag.
Allir tilheyra ákveðnum hópum sem eru lítil samfélög. Hver hópur setur viðmið eða ramma um viðeigandi hegðun. Til að mynda hegðar maður sér öðruvísi í fjölskyldunni en í skólanum eða vinahópnum. Á sama tíma höfum við sem einstaklingar líka áhrif á hópana sem við tilheyrum. Sem dæmi má nefna þá gjörbreyttir þú lífi foreldra og fjölskyldu þinnar. Það sem við veljum að gera og gera ekki hefur áhrif og afleiðingar, ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur einnig fyrir aðra sem lifa í samfélagi við okkur.
Mynd: International society for the comparative study of civilizations.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur5.1.2006
Flokkun:
Tilvísun
Garðar Gíslason. „Hvað er samfélag?“. Vísindavefurinn 5.1.2006. http://visindavefur.is/?id=5541. (Skoðað 23.5.2013).
Höfundur
Garðar Gíslasonfélagsfræðingur




