Spurning
Hvað er gorgeir í máltækinu að vera haldinn gorgeir?
Spyrjandi
Andri Ómarsson
Svar
Ekkert bendir til að gorgeir sé upprunalega mannsnafn. Að minnsta kosti hefur enginn fundist með því nafn í heimildum, fornum eða nýrri.Orðið þekkist að minnsta kosti frá 17. öld og kemur fyrir í íslensk-latneskri orðabók Guðmundar Andréssonar sem kom út í Kaupmannahöfn 1683. Guðmundur skýrði merkinuna með latneska orðinu sterquilinium sem þýðir 'mykjugryfja; óræsti' en í Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:269) er sú skýring talin vafasöm. Fyrri liðurinn er líklegast skyldur nafnorðinu gor 'hálfmelt fæða í innyflum' sem til dæmis er notaður í nafnorðinu gorraup 'mikið gort'. Uppruni síðari liðar er einnig óviss. Ásgeir Blöndal tengir hann nýnorska orðinu geire, geir 'asi, óðagot' og er það ekki ósennileg skýring.
Í heild sinni hljóðaði spurningin svona:
Var til einhver sem hét Gorgeir, sem var mjög montinn og hrokafullur og þaðan sé máltækið að vera haldin gorgeir tekinn? Ef ekki, hver er uppruni orðsins?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur9.3.2010
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvað er gorgeir í máltækinu að vera haldinn gorgeir?“. Vísindavefurinn 9.3.2010. http://visindavefur.is/?id=55000. (Skoðað 2.9.2010).
Höfundur
Guðrún Kvaranprófessor




