Spurning

Hverjar eru líkurnar á að barn fæðist HIV-smitað ef móðirin er smituð?

Spyrjandi

Snædís Inga Rúnarsdóttir

Svar

Fyrir daga lyfjameðferðar gegn HIV var hætta á smiti frá móður til barns nálægt 25%. Líkur á smiti fara eftir nokkrum þáttum, þar á meðal veirumagni HIV í blóði móðurinnar, fjölda hjálparfruma í blóði hennar og næmi veirunnar fyrir þeim lyfjum sem notuð eru. Aðrir þættir kunna einnig að hafa áhrif, svo sem aðrar sýkingar á meðgöngu og erfðaþættir móður og barns.


Með bættri meðferð og lyfjum hafa líkur á smiti frá móður til barns farið úr nálægt 25% niður í 0,6-1,6%.

Lyfjameðferð til móður á meðgöngu eða meðferð sem hefst rétt fyrir fæðingu og er einnig gefin barninu eftir fæðingu hefur dregið verulega úr smithættu. Nýlegar rannsóknir benda til að ef beitt er virkri fjöllyfjameðferð er hætta á smiti frá móður til barns nálægt 0,6-1,6%. Þættir sem geta haft áhrif á þessar líkur, auk þess sem að ofan er talið eru meðferðarheldni móður (e. compliance) og tímasetning lyfjagjafar. Aðgengi að greiningu, lyfjameðferð og annarri heilbrigðisþjónustu er því lykilatriði í því að draga úr smiti frá móður til barns.

Til viðbótar þessu er vert að minna á að ef belgir eru sprungnir lengi áður en barnið kemur í heiminn eykur það líkur á smiti frá móður til barns. Víða er því mælt með keisaraskurði HIV-jákvæðra mæðra til að draga úr smiti til barna.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum: Heimildir og mynd:
Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Hvað eru miklar líkur að manneskja sem er smitað af HIV eða eyðni eignist barn sem er líka smitað af HIV eða eyðni?

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur12.1.2010

Tilvísun

Magnús Gottfreðsson. „Hverjar eru líkurnar á að barn fæðist HIV-smitað ef móðirin er smituð?“. Vísindavefurinn 12.1.2010. http://visindavefur.is/?id=54855. (Skoðað 19.5.2013).

Höfundur

Magnús Gottfreðssonprófessor í læknisfræði við HÍ, sérfræðingur í smitsjúkdómum



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Dan Daníelsson
(1877-1957)
( Fyrri Næsti )

Stærðfræðingur og brautryðjandi í stærðfræðiiðkun á Íslandi. Skrifaði bæði vísindaritgerðir, kennslubækur og rit fyrir almenning og kenndi stærðfræði alla ævi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013