Hurðarbak er nafn á að minnsta kosti sex bæjum á Íslandi:
Bær í Villingaholtshreppi í Árnessýslu. (Hurðarbakur í landamerkjabréfi).
Bær í Kjósarhreppi í Kjósarsýslu.
Bær í Strandarhreppi í Borgarfjarðarsýslu.
Bær í Reykholtsdal í Borgarfjarðarsýslu.
Bær í Torfalækjarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu.
Nafn í Suður-Þingeyjarsýslu. (DI VI:575).
Merkingin er 'bær í hvarfi', þ.e. væntanlega í hvarfi frá alfaraleið.
Bær í hvarfi. Hurðarbak í Hvalfjarðarsveit, áður Hvalfjarðarstrandarhreppur (númer 3 á listanum hér fyrir ofan).
Finnur Jónsson segir þetta um nafnið Hurðarbak: „merkir „bak“, að bærinn er ... „fyrir aftan hurð““ og segir hann allmerkilegt hvað nafnið sé títt. (563).
Á Hjaltlandi er til nafnið Hurdiback.
Heimildir og mynd:
DI = Diplomatarium islandicum. Íslenskt fornbréfasafn. Reykjavík 1900-1904.
Finnur Jónsson: Bæjanöfn á Íslandi. Safn til sögu Íslands og íslenzkra bókmenta IV. Kaupmannahöfn og Reykjavík 1907-1915.
Svavar Sigmundsson. „Hvað merkir bæjarheitið Hurðarbak?“ Vísindavefurinn, 20. nóvember 2009. Sótt 21. maí 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=54449.
Svavar Sigmundsson. (2009, 20. nóvember). Hvað merkir bæjarheitið Hurðarbak? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=54449
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!