Spurning
Af hverju er stundum bláleitur litur á mýrum og mýrarvatni, eins og olía? Hvaða efni er þetta og hvernig myndast það?
Spyrjandi
Guðbjörg Hilmarsdóttir
Svar
Uppleyst efni í mýravatni eru einkum af þrennum toga:- lífræn kolefnasambönd úr rotnandi gróðurleifum,
- uppleyst efni úr berggrunni, öskulögum og áfoki (til dæmis járn, magnesín, kalsín, kísill), og loks
- efni úr andrúmslofti og regni (súrefni, koltvísýringur, nitur).
Tvígilt járn er talsvert leysanlegt í vatni en við yfirborð mýrarinnar oxast það brátt í þrígilt járn (Fe(III)) sem er lítt leysanlegt í vatni og fellur því út sem mýrajárn (límonít), sennilega örvað af örverum.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur28.8.2009
Tilvísun
Sigurður Steinþórsson. „Af hverju er stundum bláleitur litur á mýrum og mýrarvatni, eins og olía? Hvaða efni er þetta og hvernig myndast það?“. Vísindavefurinn 28.8.2009. http://visindavefur.is/?id=53105. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
Sigurður Steinþórssonprófessor í jarðfræði við HÍ



