Spurning

Hvað eru um það bil margir kílómetrar frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja?

Spyrjandi

Fanney Hrafnsdóttir, f. 1994

Svar

Með nútímatækni og þeim möguleikum sem Netið býður upp á er tiltölulega lítið mál að mæla fjarlægðir milli staða. Við áætlun vegalengda þarf hins vegar að athuga hvernig mælt er. Til dæmis stoðar lítið að vita hver loftlínan frá Reykjavík til Akureyrar er ef menn ætla að ferðast í bíl. Hún gagnast flugvélum þó vitanlega vel en samt sem áður fljúga þær ekki alltaf „stystu“ leiðina en það er annað mál.


Vestmannaeyjabær

Með kortavef Já.is við höndina er unnt að finna loftlínu milli staða og ef menn vanda sig vel mætti finna þokkalega nákvæman kílómetrafjölda milli staða þegar ekið er. Aftur á móti sýnir vefur Vegagerðarinnar nákvæmar tölur á milli fjölmargra staða.

Um það bil 72 kílómetrar eru á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja í beinni loftlínu. Herjólfur fer aftur á móti örlítið lengri leið eða um 75 km. Með tilkomu Landeyjahafnar styttist sjóvegalengd á milli lands og Eyja töluvert eða niður í um 13 km. Á hinn bóginn eru 137 km frá Reykjavík til Landeyjahafnar en 51 km frá Reykjavík til Þorlákshafnar. Ferðalagið mun samt sem áður taka mun styttri tíma fyrir þá sem ferðast á milli Eyja og höfuðborgarsvæðisins þó heildarkílómetrafjöldinn verði meiri.

Frekara lesefni á Vísindavefnum: Heimildir og mynd:

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur1.9.2010

Tilvísun

ÍDÞ. „Hvað eru um það bil margir kílómetrar frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja?“. Vísindavefurinn 1.9.2010. http://visindavefur.is/?id=52892. (Skoðað 22.5.2013).

Höfundur

ÍDÞ



Leit


Vísindadagatalið

Sofia Kovalevskaya
(1850-1891)
( Fyrri Næsti )

Rússneskur stærðfræðingur, ein fyrsta konan í Evrópu sem lauk doktorsprófi og varð fullgildur prófessor. Rannsakaði m.a. hlutafleiðujöfnur, sporbaugsheildi og hringa Satúrnusar.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans