Spurning
Hvaðan koma flestir ferðamenn sem heimsækja Ísland?
Spyrjandi
Inga Sigríður Björnsdóttir
Svar
Flestir ferðamenn sem koma til Ísland eru Bretar og á það við hvort sem ferðamenn skemmtiferðaskipa eru teknir með eða ekki.Ferðaþjónusta hefur verið vaxandi atvinnugrein á Íslandi undanfarin ár og fjöldi þeirra sem heimsækja landið aukist verulega. Frá árinu 2002 hefur Ferðamálaráð og síðan Ferðamálastofa verið með talningar í Leifsstöð og niðurstöður þeirra eru birtar á vef Ferðamálastofu.

Fyrsta heila árið sem Ferðamálastofa birti tölur um voru erlendir gestir sem fóru um Leifsstöð 308.768 en árið 2008 voru þeir 472.535. Skipting eftir þjóðernum var eftirfarandi:
| Land | Fjöldi ferðamanna | Hlutfall |
| Bretland | 69.936 | 15% |
| Þýskaland | 45.111 | 10% |
| Danmörk | 41.012 | 9% |
| Bandaríkin | 40.491 | 9% |
| Noregur | 35.121 | 7% |
| Svíþjóð | 32.255 | 7% |
| Frakkland | 26.161 | 6% |
| Pólland | 24.226 | 5% |
| Holland | 18.756 | 4% |
| Finnland | 10.792 | 2% |
| Kanada | 10.568 | 2% |
| Spánn | 10.438 | 2% |
| Ítalía | 10.113 | 2% |
| Sviss | 7.134 | 2% |
| Japan | 6.716 | 1% |
| Kína | 5.759 | 1% |
| Annað | 77.946 | 16% |
| Samtals | 472.535 | 100% |
Hér má sjá að Bretar eru hlutfallslega fjölmennasti hópurinn sem heimsækir Ísland og hefur svo verið öll árin sem talningin nær yfir. Þjóðverjar koma þar á eftir og síðan Danir og Bandaríkjamenn. Það sem helst hefur breyst frá 2003 er það að hlutfall Bandaríkjamanna hefur dregist nokkuð saman, þeir voru 15% allra gesta sem fóru um Leifsstöð 2003 en 9% árið 2008. Á sama tíma hefur hlutfall þeirra sem lenda í flokknum “Annað” vaxið úr 11% í 16%.
Rétt er að taka fram að áætlað er að þessar tölur nái yfir 96% erlendra gesta sem koma til landsins en um 4% ferðamanna komi um aðra flugvelli, með Norrænu og öðrum skipum.

Inn í þessum tölum eru heldur ekki farþegar skemmtiferðaskipa sem hafa stutta viðdvöl í hverri höfn og gista ekki á landinu. Hins vegar er fjöldi þeirra töluverður og hefur farið vaxandi eins og fjöldi þeirra sem koma til landsins á annan hátt. Á vef Hagstofunnar fundust tölur um fjölda ferðamanna á skemmtiferðaskipum sem heimsóttu Ísland árið 2007 og voru þeir rétt rúmlega 53.000. Skipting á milli landa er töluvert frábrugðin því sem er hjá flugfarþegunum þar sem yfir 80% farþega skemmtiferðaskipa árið 2007 voru frá þremur löndum; Þýskalandi (38,5%), Bretlandi (32,3%) og Bandaríkjunum (10,3%).
Heimildir og myndir:
- Ferðamálastofa. Skoðað 23. 6. 2009.
- Hagstofa Íslands. Skoðað 23. 6. 2009.
- Mynd frá Leifsstöð: Samtök ferðaþjónustunnar. Sótt 23. 6. 2009
- Mynd af skemmtiferðaskipi: Skarpur.is. Sótt 23. 6. 2009.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur2.7.2009
Tilvísun
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvaðan koma flestir ferðamenn sem heimsækja Ísland?“. Vísindavefurinn 2.7.2009. http://visindavefur.is/?id=52761. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttirlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins



