Spurning
Væri hægt að hafa jarfa sem gæludýr?
Spyrjandi
Valgeir Snær Sigmarsson, f. 1989
Svar
Það er yfirleitt ekki mælt með því að einstaklingar taki inn á heimili sín villt dýr, enda getur verið afar erfitt að venja þau af villtu eðli sínu. Þó hefur undirritaður heimildir fyrir því að jarfar (Gulo gulo) séu í einhverjum tilvikum hafðir sem gæludýr í Bandaríkjunum. Þeir eru þó ekki eins algengir og fjölmörg önnur “framandleg” gæludýr af meiði rándýra (carnivora).Jarfinn er af marðarætt. Hann minnir um margt á lítið bjarndýr og er frekar illskeyttur. Fyrr á tímum var hann álitinn öllum skepnum grimmari og gráðugri enda er fræðiheiti tegundarinnar Gulo, en það er komið af latnesku orði sem merkir græðgi.

Eins og á við um aðrar tegundir væri hægt að rækta úr jarfanum eiginleika eins og árásarhneigð. Slíkt gerðu menn með hunda fyrir þúsundum ára auk þess sem ótal eiginleikar hafa verið ræktaðir fram í ýmsum tegundum eins og dæmin sýna. Valræktun hefur einnig verið beitt með ýmsu móti á fjölda spendýrategunda með þeim árangri að ýmis húsdýr svo sem nautgripir og sauðfé hafa breyst í útliti og geðslagi frá villtum dýrum sömu tegunda.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Viltu segja mér allt um merði? eftir Jón Má Halldórsson
Mynd:
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Er eitthvað sem bendir til þess að það sé hægt að hafa jarfa sem gæludýr, það er, þjálfa hann að einhverju leyti? Er ef til vill hægt að rækta úr honum árásarhneigðina eins og gert var upprunalega við hunda?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur24.3.2009
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Væri hægt að hafa jarfa sem gæludýr?“. Vísindavefurinn 24.3.2009. http://visindavefur.is/?id=52011. (Skoðað 21.11.2009).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur




