Spurning

Geta fiskar lifað í geimnum?

Spyrjandi

Aron Bessi Vésteinsson, f. 1996

Svar


Geimfiskur.
Óvarðir og án útbúnaðar geta fiskar ekki lifað í geimnum, ekki frekar en menn. Fiskar draga súrefni úr vatni og það er ekkert vatn úti í geimnum. Jafnvel þótt fiskurinn fengi vatnsskál festa á hausinn á sér, eins og geimfarar eru með hjálma, myndi hinn lági þrýstingur í geimnum örugglega drepa hann. Í þessu samhengi má benda á svar við spurningunni Hvað yrði fyrst til að drepa óvarinn mann úti í geimnum?

En dýr, rétt eins og menn, geta lifað úti í geim við réttar aðstæður. Ýmiss konar dýr hafa verið send út í geiminn, fyrst án manna á meðan verið var að kanna hvort óhætt væri að senda lífverur út í geim. Eftir að mannaðar geimferðir hófust hafa dýr áfram farið með í því skyni að gera á þeim ýmiss konar rannsóknir. Fiskar fóru í fyrsta skipti út í geiminn árið 1973 en þeir voru af tegund sem á ensku kallast mummichog (Fundulus heteroclitus). Síðan hafa fiskar af fleiri tegundum fylgt í kjölfarið.

Heimildir og mynd:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur18.6.2012

Tilvísun

Ernir Arnarson, Guðjón Karl Ólafsson og Kristján Frosti Bjarnason. „Geta fiskar lifað í geimnum?“. Vísindavefurinn 18.6.2012. http://visindavefur.is/?id=48981. (Skoðað 21.5.2013).

Höfundar

Ernir Arnarsonnemandi í Háskóla unga fólksinsGuðjón Karl Ólafssonnemandi í Háskóla unga fólksinsKristján Frosti Bjarnasonnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Robert Owen
(1771-1858)
( Fyrri Næsti )

Velskur stjórnspekingur, einn af frumkvöðlum sósíalisma og samvinnuhreyfingar. Hélt því fram að persónuleiki mótaðist af umhverfi, sbr. mannauðshugtakið nú á dögum.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans