Spurning
Hvar er hægt að finna flóðatöflu á Netinu?
Spyrjandi
Steinunn Ragnhildur Guðmundsdóttir
Svar
Áratugum saman hefur mátt nálgast flóðatöflur í útgefnum almanökum, svo sem Sjómannaalmanakinu og Almanaki Háskólans. Þessar upplýsingar eru á pappírsformi og fyrir þær þarf að greiða. Reyndar er einnig hægt að fá Almanak Háskólans á Netinu, fyrir tiltekið árgjald.Í fljótu bragði finnst ekki íslensk síða á Internetinu með flóðatöflum fyrir marga staði á landinu án endurgjalds. Hins vegar er erlend síða, EasyTide, þar sem hægt er að fá fría sjö daga sjávarfallaspá fyrir margar hafnir landsins. Ýmsir aðilar vísa á þessa síðu til þess að fá upplýsingar um sjávarföll, meðal annars er bent á hana á vef Landhelgisgæslunnar.

Einnig er sjávarfallaspá fyrir margar hafnir landsins á vef Siglingastofnunar. Þar er spáð fyrir um hæð sjávarfalla á heila tímanum og upplýsingar nokkra daga fram í tímann. Það er ekki tekið fram hvenær er háflóð eða háfjara, en þar sem sjávarhæðin er gefin upp fyrir hvern klukkutíma sólarhringsins má sjá hvenær er að falla að og hvenær að fjara út og þar af leiðandi hvenær skiptir þar á milli, svona um það bil.
Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:
- Eru tengsl á milli sjávarfalla og vinds þannig að vind lægi þegar fellur út? eftir Trausta Jónsson
- Hvers vegna gætir sjávarfalla tvisvar á sólarhring? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Af hverju er ekki flóð og fjara alltaf á sama tíma? eftir Þorstein Vilhjámsson
- Hvað verður um sjóinn þegar það er fjara? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Tide á Wikipedia. Ljósmyndari: Samuel Wantman. Birt undir GNU Free Documentation og Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported leyfum.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur8.9.2010
Efnisorð
Tilvísun
EDS. „Hvar er hægt að finna flóðatöflu á Netinu?“. Vísindavefurinn 8.9.2010. http://visindavefur.is/?id=48907. (Skoðað 21.5.2013).
Höfundur
EDS




