Spurning

Hvađa augum litu Forn-Grikkir myndlist?

Spyrjandi

Kristinn Ingi Austmar Guđnason

Svar

Svo virđist sem forngrískir myndlistarmenn hafi veriđ í miklum metum, ađ minnsta kosti ţeir sem sýndu mikla hćfileika. Frćgastur allra forngrískra myndlistarmanna er án efa Pólýgnótos frá Ţasos sem var uppi á 5. öld fyrir okkar tímatal. Hann var vinur aţenska stjórnmálamannsins Kímons. Sagan segir ađ Pólýgnótos hafi áunniđ sér aţensk borgararéttindi međ málverkum sínum. Ţekkt eru heiti nokkurra málverka hans, til dćmis Akkilles í Skýros, Fall Tróju, og Ódysseifur og biđlarnir. Málverkin sjálf eru ekki varđveitt en varđveittar eru lýsingar fornra rithöfunda á ţeim til dćmis lýsingar Pásaníasar frá annarri öld.

Apollodóros frá Aţenu, sem var uppi á seinni hluta 5. aldar fyrir okkar tímatal, ţróađi ađferđ til ţess ađ tákna ljós og skugga, skiagrafia. Hann hafđi mikil áhrif á ţróun forngrískrar myndlistar. Annar merkur forngrískur myndlistarmađur hét Apelles og var frá Kólofon. Hann var uppi á 4. öld fyrir okkar tímatal. Sagan segir ađ Alexander mikli hafi ekki leyft neinum ađ mála sig öđrum en Apellesi. Apelles mun einnig hafa málađ Filippos II, föđur Alexanders og fleiri. Eitt frćgasta málverk hans hét Afródíta ađ rísa úr sćnum en Ágústus keisari mun hafa flutt ţađ verk til Rómar. Líkt og Prótógenes, sem var helsti keppinautur Apellesar, samdi Apelles bók um myndlist.

Hluti af rómverskri fresku frá 1. öld e.Kr. Hugsanlega er hún byggđ á málverki Apellesar af Afródítu ađ rísa úr sćnum.

Líkt og ađrir Grikkir öttu grískir myndlistarmenn sífellt kappi hver viđ annan. Frćg er sagan af Parrhasíosi Efesos og Zeuxisi frá Herakleu sem voru ađ metast um hvor ţeirra vćri betri myndlistarmađur. Zeuxis svipti hulunni af málverki sínu og voru berin á myndinni svo raunveruleg ađ fuglarnir reyndu ađ borđa ţau. Ţá bađ Zeuxis Parrhasíos ađ svipta hulunni af málverki sínu en hann svarađi um hćl ađ hulan vćri málverkiđ. Zeuxis tókst ţví ađ blekkja fuglana en Parrhasíosi tókst ađ blekkja Zeuxis.

Aristóteles hafđi ekki eins miklar mćtur á Zeuxis og Pólýgnótosi. Sagan segir ađ Zeuxis hafi dáiđ úr hlátri eftir ađ hafa málađ mynd af gamalli konu sem vildi sjálf sitja fyrir sem Afródíta. Parrhasíos var á hinn bóginn talinn međ ţeim allra bestu.

Nöfn margra myndlistarmanna og heiti margra verka ţeirra eru ţekkt. Međal ţekktra nafna eru nokkur nöfn kvenna, til dćmis Eirena, Alkisţena og Tímareta. Ţrćlar fengu hins vegar ekki ađ stunda myndlist.

Frekara lesefni á Vísindavefnum:
Mynd:

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur27.2.2009

Tilvísun

Geir Ţ. Ţórarinsson. „Hvađa augum litu Forn-Grikkir myndlist? “. Vísindavefurinn 27.2.2009. http://visindavefur.is/?id=48799. (Skođađ 24.5.2013).

Höfundur

Geir Ţ. Ţórarinssondoktorsnemi í heimspeki og klassískum frćđum viđ Princeton-háskóla í Bandaríkjunum



Leit


Vísindadagatalið

Janusz Korczak
(1878-1942)
( Fyrri Nćsti )

Pólskur barnalćknir, kennslufrćđingur og barnabókahöfundur. Rak munađarleysingjahćli fyrir gyđingabörn í Varsjá og sýndi ţeim virđingu, en lét svo lífiđ ásamt ţeim.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans