Spurning

Hvernig eru álftir flokkaðar?

Spyrjandi

Sigþrúður Fjeldsted, f. 1988

Svar

Álftin (Cygnus cygnus) telst vera stærsti fuglinn í íslensku fuglafánunni og er flokkuð á eftirfarandi hátt samkvæmt flokkunarkerfi Linnaeusar:

Ríki (Kingdom) Dýraríki (Animalia)
Fylking (Phylum) Seildýr (Chordata)
Undirfylking (Subphylum) Hryggdýr (Vertebrata)
Flokkur (Class) Fuglar (Aves)
Ættbálkur (Order) Andfuglar (Anseriformes)
Ætt (Family) Andaætt (Anatidae)
Ættkvísl (Genus) Svanir (Cygnus)
Tegund (Species) Álft/svanur (Cygnus cygnus)

Í ættbálki andfugla eru endur, gæsir, svanir og ýmsir aðrir hópar vatnafugla. Andaættin inniheldur endur, gæsir og svani. Alls eru 7 eða 8 tegundir svana í þessari ætt. Helst má nefna álftina (Cygnus cygnus), hnúðsvan (Cygnus olor) og svartsvaninn (Cygnus atratus) sem er uppruninn í Suðurálfu. Tegundir ættkvíslarinnar finnast nú um allan heim.



Af þessum tegundum verpir nú aðeins álftin (Cygnus cygnus) á Íslandi en til skamms tíma verptu innfluttir hnúðsvanir í Reykjavíkurtjörn og í Heiðmörk. Utan Íslands verpir álftin í Skandinavíu (aðallega í Finnlandi og Svíþjóð), á túndrusvæðum Rússlands og á strjálingi í Austur-Evrópu, aðallega í Eystrasaltslöndunum og í Hvíta-Rússlandi.

Íslenski álftastofninn er sérstök deilitegund þar sem hann er svo æxlunarlega einangraður frá öðrum álftum. Deilitegundin nefnist Cygnus cygnus islandicus.

Mynd: Sergey Panayotov - differentphotos.com

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur28.9.2004

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvernig eru álftir flokkaðar? “. Vísindavefurinn 28.9.2004. http://visindavefur.is/?id=4534. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans