Það mun vera orðgnótt, frjósemi og formfestu íslenzkunnar að þakka, að í henni hefir jafnan kveðið lítið að slanguryrðum (slang). Eins og prófessor Jespersen sýnir fram á, er slangurmálið sprottið af því, að menn verða leiðir á hversdagslegum orðum og gera sér því leik að því að bregða út af málvenjunni, með því að mynda ný orð og orðtök, er stinga í stúf við daglegt mál, stundum jafnframt til þess að vera ekki eins og aðrir. ... En yfirleitt kveður mjög lítið að slíku, og sízt kemur það fyrir í rituðu máli. Orðaforðinn, sem fyrir er, og nýyrði af íslenzkum rótum með gömlum endingum hafa nægt mönnum til að segja það, sem þeir vildu sagt hafa.Af orðum Guðmundar má vel ráða að slanguryrði hafi ekki verið áberandi í máli um 1930. Það segir þó ekki alla sögu. Unglingar og ákveðnir hópar í þá daga hafa vel getað átt sitt mál þótt allur almenningur hafi ekki þekkt það. Þeir sem fást við að skoða sögu orðaforðans þekkja vel að alger tilviljun ræður því oftast að gamalt slanguryrði kemur fram í dagsljósið.
Hvað er slangur gamalt fyrirbrigði?
Útgáfudagur
16.8.2004
Spyrjandi
Eva Símonardóttir
Tilvísun
Guðrún Kvaran. „Hvað er slangur gamalt fyrirbrigði?“ Vísindavefurinn, 16. ágúst 2004. Sótt 16. maí 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4464.
Guðrún Kvaran. (2004, 16. ágúst). Hvað er slangur gamalt fyrirbrigði? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4464
Guðrún Kvaran. „Hvað er slangur gamalt fyrirbrigði?“ Vísindavefurinn. 16. ágú. 2004. Vefsíða. 16. maí. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4464>.