Spurning
Hylma ríkisstjórnir yfir tilvist geimvera eins og oft má sjá í kvikmyndum?
Spyrjandi
Sveinbjorn Finnsson
Svar
Þrátt fyrir allt leita ríkisstjórnir oft ráða hjá þeim sem best vita um viðkomandi efni, til dæmis hjá vísindamönnum. Vísindamenn krefjast yfirleitt staðgóðra gagna eða "sannana" áður en þeir fara að trúa verulegum nýmælum eins og þeim til að mynda að geimverur hafi sést á jörðinni eða þeim hnetti sem um er að ræða hverju sinni. Ríkisstjórnir hafa þá sjálfsagt oft tilhneigingu til að taka undir þennan vafa.En með spurningunni kann líka að vera átt við það að ríkisstjórnir hneigist til að reyna að fela það að geimverur hafi komið í heimsókn "í raun og veru" í viðkomandi skáldverki. Slíkt gæti þá tengst ótta ríkisstjórna og valdamanna við skyndilegar uppákomur sem geti valdið óróa og usla í samfélaginu og jafnvel breytt valdastöðu þeirra.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Eru til staðfest dæmi þess að geimverur séu til? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Hvernig er hægt að sanna að það sé ekki líf á einhverri plánetu? eftir Þorstein Vilhjálmsson
- Ef við erum ekki einu vitsmunaverurnar í heiminum, af hverju verðum við þá ekki vör við útvarpsbylgjur frá öðrum? eftir Sævar Helga Bragason
- Er rétt að menn reyni að þagga niður í fólki sem segjast hafa séð geimverur? eftir JGÞ
- Hvernig fara geimverur í sturtu? eftir ritstjórn
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.5.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
ÞV. „Hylma ríkisstjórnir yfir tilvist geimvera eins og oft má sjá í kvikmyndum?“. Vísindavefurinn 14.5.2000. http://visindavefur.is/?id=430. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
ÞVprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011




