Spurning
Hvað eru til mörg hestakyn?
Spyrjandi
Sara Lísa Ævarsdóttir, f. 1990
Hildur Axelsdóttir, f. 1989
Svar
Allt frá því að menn tóku hross í þjónustu sína fyrir 3-4 þúsund árum á steppum Mið-Asíu hafa hestar gegnt mikilvægu hlutverki í samfélögum manna víða um heim. Í árdaga voru villihestar mikilvæg veiðidýr en þegar fyrst var farið að halda hesta var það aðallega vegna þess að hægt var að nýta kjötið af þeim og mjólkina. Fornleifar benda til þess að á öðru árþúsundi fyrir Krist hafi hross verið notuð sem dráttardýr og í hernaði. Hesturinn hefur því lengi verið þarfasti þjónninn.Margir fræðimenn telja hinn sjaldgæfa przewalskihest (Equus caballus przewalski) vera hinn upprunalegu hest nútímans og þann sem öll önnur hestakyn séu komin af. Einhver ágreiningur er þó um það þar sem przewalskihesturinn hefur fleiri litninga en aðrir hestar nútímans, eða 66 litninga í stað 64 litninga eins og önnur hestaafbrigði. Hægt er að lesa meira um przewalskihestinn í svari sama höfundar við spurningunni Eru villihestar til nú á dögum? og um þróun hesta í svari við spurningunni Hvað er hestur?
Fjölmörg ræktunarafbrigði eða kyn hesta hafa komið fram, ýmist vegna valbundinnar ræktunar eða landfræðilegrar einangrunar. Eitt slíkt kyn er íslenski hesturinn en lesa má um uppruna hans í svari Stefáns Aðalsteinssonar við spurningunni Hvaðan er íslenski hesturinn uppruninn?

Flestir hrossasérfræðingar eru á því að fjöldi hrossakynja í heiminum sé um 250 talsins. Þessi kyn eru æði misjöfn að stærð, allt frá stærstu dráttarklárum sem eru yfir 2 metrar á hæð yfir herðakamb (sjá svar sama höfundar við spurningunni Hvert er stærsta hestakynið í heiminum?) niður í smæstu smáhesta svo sem Patagonian Fallabella sem eru svipaðir á stærð og þýskir fjárhundar.
Frekara lesefni á Vísindavefnum:
- Hvernig eiga hestar samskipti sín á milli? eftir Hrefnu Sigurjónsdóttur
- Hendricks, Bonnie L. (1995). International Encyclopedia of Horse Breeds, University of Oklahoma Press
- The International Museum of the Horse
- Page Creek Ranch
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur14.4.2004
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
Jón Már Halldórsson. „Hvað eru til mörg hestakyn?“. Vísindavefurinn 14.4.2004. http://visindavefur.is/?id=4138. (Skoðað 18.5.2013).
Höfundur
Jón Már Halldórssonlíffræðingur






