Skjaldbökur sem eru náskyldar krókódílum verða afar langlífar. Þær hafa hálfgerða brynju á bakinu sem ver þær fyrir óvinum. Elsta risaskjaldbakan (Geochelone elephantopus) sem vitað er um, náði líklega 152 ára aldri. Risaskjaldbökur eru langlífastar allra hryggdýra. Þær lifa aðeins á Galapagoseyjum og er nú í útrýmingarhættu vegna ofveiði og vegna þess að búsvæði hennar hefur víða verið eyðilagt með landbúnaði. Talið er að um 15.000 dýr séu nú á lífi. Heimildir og mynd:
- Crocodilian Biology Database
- Florida Museum of Natural History
- Hve lengi lifir risaskjaldbakan? eftir Tryggva Þorgeirsson
- Hver er munurinn á alligators og crocodiles? eftir Jón Má Halldórsson
Þetta svar er eftir grunnskólanema á námskeiði Vísindavefsins sem haldið er í samvinnu við samtökin Heimili og skóla og Fræðslumiðstöð Reykjavíkurborgar vegna bráðgerra barna.