Spurning

Af hverju fær maður hellu fyrir eyrun?

Spyrjandi

Elvar Ásmundsson, f. 1988

Svar

Eyrað skiptist í þrjá hluta, úteyra sem er hin sýnilega blaðka eyrans og hlustin, miðeyra eða hljóðhol og inneyra eða völundarhús. Bæði úteyrað og hljóðholið eru fyllt lofti en hljóðhimnan skilur á milli þessara tveggja hluta eyrans.

Hella í eyrum stafar af þrýstingsmun yfir hljóðhimnu eyrans. Hún kemur fram þegar skyndileg breyting verður á innri eða ytri þrýstingi. Slíkt getur til dæmis gerst þegar við erum í flugvél sem er að taka á loft eða lækka flugið eða þegar ekið er hratt upp eða niður brekku.

Grönn pípa sem kallast kokhlust tengir miðeyrað við kokið. Með því að opnast hleypir hún aukalofti út og jafnar mun á milli ytri þrýstings (í hlustinni) og innri þrýstings (í kokinu). Það skýrir hvers vegna hægt er að losna við hellu með því að geispa eða kyngja.

Heimildir:
  • Tortora, Gerard J. (1997): Introduction to the Human Body - The Essentials of Anatomy and Physiology. Menlo Park, California: Benjamin Cummings.
  • Örnólfur Thorlacius (2002). Lífeðlisfræði. Reykjavík, Iðnú.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur22.9.2003

Tilvísun

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Af hverju fær maður hellu fyrir eyrun?“. Vísindavefurinn 22.9.2003. http://visindavefur.is/?id=3747. (Skoðað 18.5.2013).

Höfundur

Þuríður Þorbjarnardóttirlíffræðingur



Leit


Vísindadagatalið

Ólafur Björnsson
(1912-1999)
( Fyrri Næsti )

Hagfræðingur og stjórnmálamaður, samdi mörg rit um þjóðhagfræði og skyld svið og þýddi einnig erlend rit. Var um langa hríð mikilvægur ráðgjafi stjórnvalda.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans