Spurning

Hvađa munur er á ljósu og dökku hári?

Spyrjandi

Klemens Ágústsson, f. 1992
Steinunn Friđriksdóttir, f. 1990
Selma Hrönn Jónasdóttir, f. 1993
Guđrún Lilja, f. 1992

Svar

Hér er einnig svarađ spurningunum:
  • Af hverju eru sumir rauđhćrđir?
  • Hvers vegna er háriđ mitt ljóst?
Hárlitur stafar af litarefninu melaníni sem er myndađ af litfrumum í merg hársekks. Eftir myndun fćrist melaníniđ í hárrótina, ţađ er ađ segja ţann hluta hárs sem er undir húđţekju og síđan upp í hárstilkinn eđa ţann hluta hárs sem skagar upp úr húđţekjunni.

Tvö afbrigđi eru til af melaníni - faeómelanín (gult-rautt) og eumelanín (dökkbrúnt-svart). Dökkt hár inniheldur mestmegnis eumelanín á međan ljóst og rautt hár inniheldur mismikiđ af faeómelaníni sem í er járn og meira af brennisteini en í eumelaníni.

Hvađ hver einstaklingur myndar fer eftir erfđum, ţađ er ađ segja hvađa gen eru í frumum hans. Vitađ er ađ fleiri en eitt gen hafa áhrif á bćđi húđ- og hárlit. Hér er ţví dćmi um fjölgena erfđir og einnig ófullkomiđ ríki ţar sem genin geta spilađ saman á mismunandi hátt, allt eftir ţví hvađa gen lenda saman í hverjum einstaklingi. Ţess vegna er hárlitur (og húđlitur) svo margbreytilegur sem raun ber vitni.

Áđur fyrr var taliđ ađ dökkt hár vćri ríkjandi yfir bćđi ljósu og rauđu hári, en máliđ er sem sagt ekki svo einfalt. Einnig er nú vitađ ađ rauđhćrt fólk er međ viđtaka á yfirborđi frumna sinna (melanokortín-1 viđtaka) sem bindur rauđa litarefniđ.

Skođiđ einnig önnur svör á Vísindavefnum: Mynd: The Wunderland Long Hair Index

Um ţessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur8.9.2003

Tilvísun

Ţuríđur Ţorbjarnardóttir. „Hvađa munur er á ljósu og dökku hári?“. Vísindavefurinn 8.9.2003. http://visindavefur.is/?id=3714. (Skođađ 23.5.2013).

Höfundur

Ţuríđur Ţorbjarnardóttirlíffrćđingur



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Nćsti )

Grasafrćđingur, skólamađur og alţingismađur, rannsakađi jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Ađalstyrktarađili

Happdrćtti Háskólans